Úberlaserpenninn minn;)

guð ég trúi því ekki að ég hafi gleymt að minnast á pennann, nei úberpennann, sem ég vann í Glimeryl lukkuhjólinu í vísindaferðinni í Actavis síðasta föstudag. þvílíkur fögnuður sem braust út í hjarta mínu þegar örin lenti á glimeryl! því þetta er sko ekki bara penni..ó nei, þetta er sko líka laser!! og ekki nóg með það, þá er hægt að draga pennann út og gera hann að bendipriki!! ég lýg þessu ekki!!!!!! haldiði að maður verði flottur á því næst þegar maður heldur fyrirlestur fyrir bekkinn. við vorum nokkur í bekknum sem fengum svona penna. hinir fengu bara nafnspjald sem stendur paxetin á, múhaha (var nú samt ekki hægt að finna eitthvað annað lyf til að hafa á nafnspjaldi?? hmm??)

annars kom úberpenninn minn að verulega góðum notum á djamminu. það er svo auðvelt að spotta myndarlega karlmenn og spyrja stelpurnar hvernig þeim lýst á þennan og þennan og þennan og....      að vísu var mér bent á það að ég var eiginlega að benda á annan hvern kalrmann þarna inni en ekki endilega þá myndarlegu. en það er nú bara (ó)kosturinn við að fara gleraugnalaus á djammiðCool

kveðja með hori, slefi, hósta, hausverk og eyrnabólgu úr EggertsgötunniSick


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvað sem úberlaserpenanum og veikindum líður Eydís mín, þá er ég orðin húkkt á Ugly Betty! og hef þar af leiðandi ekkert lært seinnipart þessarar viku! (okey, næstum, ég nátturulega leyfði mér að gera ekkert og í tilefni þess að horfa á Betty) en þessir þættir eru soldið skemmtilegir!

Láttu þér svo batna fljótt essskan, við Eygló erum vængbrotnar án þín! þurfum á þér að halda í LEN boot-camp eftir tíma á mánudaginn

Gugu Lind (IP-tala skráð) 3.2.2007 kl. 11:43

2 identicon

*BATN*

Heiður (IP-tala skráð) 4.2.2007 kl. 12:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband