Dísa Power!

í haust mun Dísa Power mæta í skólann fersk og endurskipulögð. það er ekki víst að bekkjarfélagar hennar muni þekkja þessa stúlku, svo mikil verður umbreytingin!!!

....því Dísa Power byrjar hvern einasta morgun á að fara í ræktina og eftir að hafa borðað hollan og staðgóðan morgunmat, er hún mætt í skólann klukkan 8:00, hvort sem hún á að mæta í tíma eða ekki. ef það er ekki kennsla kl.8 þá nýtir hún þennan tíma bara til að læra af mikilli orku og einbeitningu.

eftir að hafa mætt í ALLAR kennslustundir dagsins og glósað af eldmóð og fróðleiksfýsi, fer hún á bókasafnið og les þá kafla sem kennarar hennar fóru í um morguninn....svona svo hún geti glósað aukalega og rammfest þetta í minni sínu.

síðan er borðaður einhver sá agalegasti og hollasti grænmetiskvöldverður sem fólk getur hugsað sér og eftir það fara kvöldin í það að lesa fyrirlestrarglósur og kafla morgundagsins, til að vera búin að kynna sér efnið og geta spurt vitsmunalegra spurninga í tíma, sem verður til þess að bekkjarfélagar hennar líta upp til hennar með lotningu en jafnframt með ákveðna sjúkdómsgreiningu í huga. einstaka sálu langar jafnvel að lemja hana!

sjónvarpsgláp og 3 klukkustunda bloggrúntar heyra sögunni til. Dísa Power henti sjónvarpinu í ruslið eftir að hún áttaði sig á því að Dr. McDreamy and Steamy og Jack og Sayer í Lost voru í raun ekki kærastar hennar. (úbbs fyrirgefðu GuguLind þú áttir víst þetta sjónvarpWhistling my bad!!). en Dísa Power hefur einfaldlega áttað sig á því að dagdraumar eru fyrir aumingja!!!

helgunum eyðir Dísa Power í að rifja upp kennslu vikunnar og að leita sér auka-upplýsinga um kennsluefnið sem hún hafði ekki fengið hjá kennurum eða í kennslubókum. þess á milli týnir hún rusl með umhverfishreyfingunni og dansar samkvæmisdansa með danshópnum "komdu að dansa".

í próftíð getur Dísa Power loksins slakað á og sofið út. farið í sund og picnic á Austurvelli á meðan bekkjarfélagar hennar sitja sveittir að lesa og óska þess heitast að hafa verið jafn duglegir og Dísa Power að læra í vetur!! múhahaha

ég finn að Dísa Power ólgar inní mér en kemst bara ekki fram á sjónarsviðið fyrir Dísu Diggs, sem lýst misvel á kellu en vinnur þó að því að finna rétta eiturlyfið sem gæti gert Dísu Power að veruleika. And she´s thinking amphetamine.....what do you think?FootinMouth


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Einu sinni var líka strákur sem hét Peter Pan og annar sem hét Jesú og þessar sögur eru jafnsannar og sagan af Dísu Power.........

Sigurbjörg Helgadóttir (IP-tala skráð) 2.5.2007 kl. 17:24

2 identicon

Nei þá vil ég nú frekar Dísu Diggs heldur en Dísu power!!!  Ég hafna þeirri núlltilgátu að Dísa Diggs yfirgnæfi ekki Dísu Power á þeim rökum að p-gildið hennar er alveg út úr kú...ég held bara að Dísa power hafi orðið fyrir of miklu áreiti og hafi ekki augljósa klíníska þýðingu!

Eygló (IP-tala skráð) 2.5.2007 kl. 18:35

3 Smámynd: GLind

Ohhhh hvað ég kannast við þetta ég-er-komin-með-svo-mikið-ógeð-af-mér-að-ég-gæti-ælt! stig!!! 

Þú getur lokkað Dísu Power út með því að segja henni að hún verði í félagsskap með Glæsi Lind!!! sem mun fæðast í sumar!

ps. annars ef þetta gengur ekki the natural way þá getum við talað við Albert Hofmann með eitthvað gott stöff!  

GLind, 2.5.2007 kl. 18:35

4 Smámynd: GLind

Eygló! þú ert klárlega orðin of röskuð og bjöguð án þess að vita hvað það er og veist þessvegna ekki hvað þú átt að gera við þig stelpa! Farðu bara að læra og hættu þessari tilviljun!

GLind, 2.5.2007 kl. 18:37

5 identicon

Þið vitið að við eigum bara eftir eina prófatörn eftir þessa svo að Disa power verður að koma fram á sjónarsviðið á næstu önn ef hún á einhvern tímann eftir að sjást

Katla (IP-tala skráð) 2.5.2007 kl. 23:06

6 Smámynd: Eydís Huld

hmmm mér finnst Sibba og Katla nú ekki hafa mikla trú á því að Dísa Power verði að veruleika...hmmm I´ll show them!!

ég vil þakka GlæsiLind og GuguStef fyrir sýndan stuðning!

As for Eygló: svar hennar er ekki tölfræðilega marktækt því hún þjáist af svo miklum bjaga því hún er svo sjúk í Dísu Diggs!!!

Eydís Huld, 2.5.2007 kl. 23:53

7 Smámynd: ronja06

You go girl !!!

ronja06, 3.5.2007 kl. 09:35

8 identicon

Hahaha, mér finnst þú svo agalega sniðug (ekki í merkingunni að þetta sé "hahaha-fyndið-af-því-þetta-gerist-aldrei) heldur af því þú segir svo skemmtilega frá.

Af kommentunum frá lybbahópnum þínum af dæma þá held ég að ykkur veiti ekki af fríinu sem er rétt handan við hornið. Djöfull eruð þið orðnar grillaðar! 

Heiður (IP-tala skráð) 3.5.2007 kl. 16:32

9 identicon

jahá.... sammála seinasta ræðumanni. þið eruð orðnar vel grillaðar..

og ykkur veitir greinilega ekki á Balí...;)

Konný (IP-tala skráð) 4.5.2007 kl. 14:52

10 identicon

Jamm sammála Konný þar) En vá hvað ég átti eftir að lesa mikið af bloggi hjá þér:/ Ég er ekki að standa mig í blogghringnum:( En vildi smella á þig kveðju, vonandi ganga prófin vel dúlla;)

Alla (IP-tala skráð) 6.5.2007 kl. 10:11

11 Smámynd: GLind

Þú verður samt að hleypa Dísu Diggs með okkur í Napoleon Dynamite tribute bíóferð á miðvikudaginn á "Blades of Glory" þar sem ferðin ferður farin amk af tveimur hópum: "The Gugus" og "The Eys" !!! 

GLind, 6.5.2007 kl. 13:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband