Hola amigos;)

hæhæ

allt gott að frétta héðan úr perulandinu!

Erum aðeins farnar að REYNA  að nota spænskuna í búðum, þá aðalega tölurnar og það gengur nú bara nokkuð vel hjá okkur. Það er er ekkert smá mikið af upplýsingum sem búið er að troða í hausinn á okkur á einni vikur maður...úff. en þetta verður víst að gerast á þessum hraða ef við ætlum að geta talað tungumálið;)

Erum búnar að skrifa undir leigusamning, borga tryggingu og mánaðarleigu og fá lykla af íbúðinni okkar;);) svo flytjum við inn á morgun. gengur bara allt eins og í sögu hjá okkur en það er að sjálfsögðu af því Cristhian gerir allt fyrir okkur. algjört yndi. fórum út að borða með honum og konunni hans í gærkvöldi á einhvern svaka fínan stað. í gær var hátíð "original" tónlostar frá perú og sú tónlist var spiluð allt kvöldið á þessum stað. smökkuðum hefðbundna perúska rétti, kjötrétt sem heitir lomo saltado og svo 2 kartöflurétti. vissuð þið að kartöflur eru upprunnar frá perú? og hér eru ræktaðar um 2000 gerðir af kartöflum??? tja þetta vissi ég allavega ekki;)

í dag er hrekkjavaka og göturnar eru fullar af litlum börnum í búningum að betla nammi. erum búnar að sjá fullt af litlum íþróttaálfum og sollu stirðum hérna!! bara gaman að latibær sé að gera það svona gott hérna í perúlandinu, hver hefði trúað því;) hehe

í kvöld er svo síðast kvöldið okkar á hostelinu og það er einmitt hrekkjavökupartý;) þó það verði gott að fara í íbúðina þá eigum við eftir að sakna hostelsins því það er svo geðveikt góð stemning hérna alltaf!

jæja best að fara að gera sig klára fyrir mitt fyrsta hrekkjavökupartý;)

knús á alla á klakanum

Eydís


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Alltaf gaman að fá fréttir af þér, við skálum fyrir þér annað kvöld. Knús á þig

Sigrún (IP-tala skráð) 1.11.2008 kl. 00:58

2 identicon

MISS U...

ég fer alveg bráðum að blogga fyrir þig sæta.

og tek undir með sigrúnu.. það verður skálað fyrir þér í kvöld(ég og Mæja skálum reyndar bara í appelíni en það er ekkert verra)

Konný (IP-tala skráð) 1.11.2008 kl. 13:09

3 Smámynd: ronja06

Skál besta frænkan mín :) Nú eru mömmur mínar gengnar af göflunum, búnar að láta raka allan fína feldinn minn af mér áður en þessi krakki fæðist..... Ég er samt alveg ótrúlega flott svona, svolítið kalt bara....

Kossar, knús og voff........

ronja06, 1.11.2008 kl. 19:00

4 identicon

KNÚÚÚÚÚS!

Heiður (IP-tala skráð) 2.11.2008 kl. 20:46

5 identicon

...takk fyrir sendinguna!!!

kónguló (IP-tala skráð) 3.11.2008 kl. 21:48

6 identicon

Vúhúhú Perúblogg! 

Simmi (IP-tala skráð) 4.11.2008 kl. 22:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband