hey var ég búin að segja ykkur að....
Laugardagur, 7. febrúar 2009
....við Eygló erum hávaxna fólkið í vinnunni;)
.... í vinnunni eru bara til hanskar í stærðunum S og M. Þarf ekki stærra;)
....karlmenn hér eru í fullkominni hæð til þess að stara á brjóstin á manni þegar maður mætir þeim úti á götu. Ég meina það er ekki eins og maður geti skammað þá fyrir að horfa beint áfram:/
....við kaupum mjólk í pokum því hún er ódýrari en mjólk í plastbrúsum
....það kostar minna en 10kr að kaupa 4 nýbökuð, volg og góð brauð
....þar sem prins póló og séð & heyrt eru í hillunum hjá afgreiðslukössunum í Bónus, eru eggjabakkar í súpermörkuðunum hér
....í búðunum eru þjófavarnir á þremur vörutegundum og engum öðrum: vínflöskum, Red Bull og þurrmjólkurdufti.
....ég er orðin furðulega vön því að í hvert skipti sem eitthvað rafmagnstæki er sett í samband, kemur blossi og á góðum degi fær maður smá stuð;)
....spænska orðið "salud" þýðir heilsa. Eins og flestir vita er þetta orð notað þegar fólk skálar á spænsku. En þegar maður hnerrar þá segir fólk líka "salud", í staðinn fyrir "guð hjálpi þér" á íslensku. Svo ég get nú ekki betur séð en að guð sé að hjálpa manni að stuðla að betri heilsu með því að láta mann skála sem mest og oftast;);)
Djamm í kvöld krakkar;););)
SALUD!!!!
Athugasemdir
jæjæjæ jt rtyu ghu huyf mhjjim , ghtfddv drtyb bg fytt gvb:)
joæhit (IP-tala skráð) 8.2.2009 kl. 13:44
já ég sá ekki á lyklaborðið því ég var liggjandi þegar ég skrifaði þetta...ég sé að það vantar þarna auka "j" í mhjjim/ penni! hahaaha...já ég skal sem sagt þýða þetta, en þarna stendur að ég elska elska bloggin þín eydís því þú ert svvoooo góður penni:) Love ya:)
hildur (IP-tala skráð) 8.2.2009 kl. 13:46
;) hehe.. ertu sem sagt búin að prufa að rölta út úr búðum með þessar 3 vörur?? haha
Vonandi skemmtir þú þér vel í gær sætust.
kiss kiss og miss miss
Konný (IP-tala skráð) 8.2.2009 kl. 22:31
Salud!!
Sigrún (IP-tala skráð) 9.2.2009 kl. 20:53
Hvað er að ske með facebook statusinn? forvitnin er alveg að drepa mann.
Katla (IP-tala skráð) 10.2.2009 kl. 11:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.