Nýrnasýking var það heillin;)

er orðin miklu betri núna. massaskammtar af sýklalyfjum eru farnir að kikka inn;)

Helgin var róleg eins og ég bjóst svo sem við. á föstudagskvöldinu kíktum við aðeins út en ég var nú bara í vatninu og fór snemma heim. svo svaf ég nú bara mest allan laugardaginn, greinilega einhver uppsöfnuð þreyta þar á ferð. Eygló vakti mig klukkan 3 eins og flestar mæður myndu gera: "Eydís mín! klukkan er orðin 3, nú ert þú að fara að koma þér út! " hehe

svo á laugardagskvöldinu fórum við í bíó og sáum "He´s just not that into you". fín mynd.

úff ég trúi ekki að það sé kominn mars! tíminn hérna er búinn að vera fáránlega fljótur að líða!afmælismánuðurinn bara strax kominn og ég verð að fara að ákveða hvað ég ætla að gera í tilefni þess. hmmm... hugsi hugsi...

búin að setja inn þær fáu febrúarmyndir sem við tókum í myndaalbúmið okkar systra;)

xoxo

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ Eydís

Já tíminn er fljótur að líða sem betur fer því við sökun þín vinkonurnar hérna... svo við vonum bara að tíminn haldi áfram að vera fljótur að líða því þá ert þú komin heim hahahaha...

Knús og kram frá Sandy Hills

María Jóna (IP-tala skráð) 2.3.2009 kl. 01:50

2 identicon

Djöfull líturu vel út kona!!!!

Hildur alla balla malla hans kalla (IP-tala skráð) 2.3.2009 kl. 15:54

3 identicon

;) kvitt kvitt

Sigrún (IP-tala skráð) 2.3.2009 kl. 17:56

4 Smámynd: GLind

Nýrnasýking? Eydís mín, þú hefðir nú alveg getað náð þér í það bara hérna á klakanum, er það ekki.... óþarfi að eyða Perúferð í þetta, eða hvað ?

Skemmtilegar myndirnar! Kemur náttla ekki á óvart, þið eruð svo skemmtilegar! 

GLind, 2.3.2009 kl. 19:18

5 identicon

hæhæ aftur Eydís , ég var að skoða myndirnar í feb... rosalega finnst mér eins og þú ert búin að grennast helling ? Ertu búin að missa einhver mörg kg ? Finnst þú líta rosalega vel út.... Haltu áfram að hafa gaman af lífinu.... ótrúlega heppin að prófa svona ferð áður en þú ferð að stofna family og fleira hahahaha....

María Jóna (IP-tala skráð) 2.3.2009 kl. 22:41

6 Smámynd: Eydís Huld

Takk fyrir það Hildur og Mæja! æi ætli maður líti bara ekki vel út af því manni líður vel. er það ekki alltaf þannig? mér líður allavega rosalega vel hérna;)

við stöllur höfum þó óhjákvæmilega misst eitthvað af spiki þar sem við erum áskrifendur af reglulegum s-amerískum matareitrunum með tilheyrandi "aukaverkunum" a.k.a. drulla hehe;)

Eydís Huld, 3.3.2009 kl. 04:55

7 identicon

Hæ ELSKAN mín!

Nýrnasýking....habarahona, ullabjakk.

 En ég tek undir með stelpunum hér að ofan, þú lítur rosalega vel út og mikið er það nú yndislegt að heyra að þér líði svona vel. Annars stóð undir einni myndinni að þið ætluðuð kannski til Argentínu í lok árs!!! Á ekkert að koma heim eða hvað, hehehe????

 Svo kann ég vel að meta hve jákvæðum augum þér tekst að líta á drullu. Svo finnst mér líka eins og ég sé eitthvað oft að minnast á drullu í þessum kommentum....

Heiður (IP-tala skráð) 3.3.2009 kl. 10:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband