Te vas, te vas, te vas....

Djöfull var síðasta laugardagskvöld skemmtilegt!

Eileen, írska vinkona okkar, er búin að vera hjá okkur í viku núna og að sjálfsögðu skelltum við okkur í dansskóna síðasta laugardagskvöld, þar sem við ætluðum nú aldeilis að taka á því! Það endaði þó með því að ekki var stigið svo mikið sem eitt dansspor en kvöldið var engu að síður algjör snilld! Það er nú samt eiginlega lítið hægt að segja frá kvöldinu nema það að við enduðum á aðaltorginu í Barranco (næsta hverfi við okkar hverfi), drekkandi bjór frá vinkonu okkar sem gekk um og seldi bjór úr kerrunni sinni. Man nú ekki hvað klukkan var þegar við komum heim en ég man að sólin var löööngu komin upp! Setti inn myndir frá kvöldinu;)

Í gærkvöldi fórum við út með fólki úr vinnunni því við vorum að kveðja eina sem var að hætta. vá hvað það var mikil synd að vera ekki með myndavélina! fórum á kjúklingastað sem er einnig karókístaður! vorum í okkar eigin herbergi og ég held bara svei mér þá að þetta hafi verið eitt laglausasta samansafn af fólki í einu herbergi. það er alveg fáránlega sjaldgæft að fólk geti actually haldið lagi hérna! en þeim var nú nokkuð sama um það og það var ekkert smá góð stemmning. öll lögin voru að sjálfsögðu á spænsku og ég gerði mitt besta til að syngja part úr lagi en það endaði nú reyndar með því að ég var bara farin að bulla og yfirmaður minn tók video af því á símann sinn:/

jæja best að fara að kúra svo mann verði vel hvíldur fyrir flöskudaginn á morgun;)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ooh, Eydís, þú lítur svo vel út kona!

Heiður (IP-tala skráð) 13.3.2009 kl. 13:06

2 identicon

HAHAHAHAHAHAHAHA....ég stór skemmti mér bara við það eitt að lesa þetta...poppaði mig gjörsamlega úr þassari biblíotekarstemmingu sem ég er í uppí smá weekend sipp og hoj!!:) ...og enn og aftur DJÖFULL LÍTURU VEL ÚT KONA!!!! ...ooo langar til útlanda!! ....nei heyrðu ég er það nú reyndar....en bara lengra niður:) Knús á línuna þína

hejhej

Hildur Ingadottir (IP-tala skráð) 13.3.2009 kl. 15:16

3 identicon

Geggjaðir skór, ekta svona Eydís, knús á þig sæta

Sigrún (IP-tala skráð) 13.3.2009 kl. 21:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband