Sáuð þið Kompás þáttinn í gær?

Það var verið að gera tilraun til þess að fletta ofan af gaurnum úr Byrginu fyrir að neyða unga skjólstæðinga sína til þess að stunda alls konar drottnunarkynlífsathafnir og ég veit ekki hvað og hvað. Nema ég varð bara fyrir miklum vonbrigðum hvernig þeir gengu frá þessu máli. Þeir eiginlega flettu ekki ofan af neinu. Þeir sannfærðu mig allavega ekki og samt var ég eiginlega sannfærð um að þetta væri satt áður en ég horfði á þáttinn. Fékk alltaf nett klígjur þegar ég var að afgreiða þennan mann og vini hans, þegar ég var að vinna í sjoppunni í Sandgerði, þegar Byrgið var á Miðnesheiði. Mér fannst þessi þáttur bara vera skilgreiningar á afbrigðilegu kynlífi og svo fór meirihlutinn af þættinum í að ásaka hann um hina og þessa hluti og sýna honum eitthvað bréf sem einhver hafði sent fréttamönnum. Svo voru tekin viðtöl við 2 fíkla (nafnlaust) en samt höfðu þeir 20 einstaklinga sem allir bera sömu söguna. ok það hlýtur nú að vera að þeir séu með sannanir undir höndum því annars færu þeir ekki að gera svona þátt. En af hverju ná þeir þá ekki að sanna neitt með þessum þætti? bréf og viðtöl við 2 fíkla var það eina sem við sáum og það vita það nú allir að fíklar ljúga meira en nokkurt annað fólk, eins og sannaðist nú bara í seinni hluta þáttarins þegar það var sýnt frá brúðkaupi frægustu fíkla landsins. VÁ hvað ég hef aldrei horft á eitthvað sem er jafn sorglegt og það var skemmtlegt! Það þurfti að draga þau á lappir á brúðkaupsdaginn og brúðurinn var næstum sofnuð í miðri athöfn. Greyin!!! en.....sjúklega fyndið!!

En allavega með þennan gaur í Byrginu. Mér fannst maðurinn nú full rólegur miðað við þær ásakanir sem fréttamenn voru með, en það er nú kannski ekki að marka það. Maður veit auðvitað ekkert hvað þessi maður hefur upplifað og kannski er hann bara búin að upplifa svo margt að það þarf meira en þetta til þess að stuða hann. Eða kannski var hann að gæta þess að missa ekki eitthvað óheppilegt út úr sér? Mér finnst það nú yfirleitt vera sekur maður sem gerir svoleiðis!!

En ég hef nú trú á því að þáttargerðarmenn hafi góðar sannanir fyrir þessu, úr því þeir eru að gera þennan þátt. En ef þeir hafa þessar sannanir.....og hann gerði þessa hluti með því að halda því fram að vera sendiboði guðs og nota til þess hundruðir milljóna frá ríkinu.....af hverju var maðurinn ekki GRILLAÐUR í þættinum???? af hverju sönnuðu þeir ekki neitt fyrir áhorfendum? ef þeir ætla að gera svona þátt.........gera hann þá almennilega!!!!! Því það var greinilega ásetningur þáttagerðarmanna að sýna fram á sekt hans en þeim tókst ekki einu sinni að sannfæra manneskju eins og mig, sem var áður nokkuð sannfærð, hversu fordómafullt sem það nú er. Mér fannst þetta bara klaufalegur þáttur!!!

hmmm ágætt að tala og hugsa um eitthvað annað en próf;)  seinasta prófið er á miðvikudaginn og þá er ég komin í JÓLAFRÍ;);););)

jæja ég ætla að fara að læra um sérhæfð lyfjaform

Dísa Diggs


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Langar barað benda á það að það eru alltaf tvær hliðar á öllum málum.. Ég sat og horfði á þennan þátt í gær og ekki tókst mér að sannfærast af manninum að hann hefði ekki gert þetta, því miður!!! Eitt sem hann sagði sló mig soldið útaf laginu.. það var þegar hann var spurður hvort hann stundaði BDSM þá svaraði hann: nei og börnin mín vita það best(eitthvað i þá áttina sem hann orðaði það) hvað meinar hann með því???

eyrun (IP-tala skráð) 18.12.2006 kl. 15:51

2 identicon

Hann heldur að hann sé Guð!!! hann er að tala um svo kölluð börnin sín, eða það myndi ég halda.
Fólk talar  um hvað hann er mikill rugludallur með þetta, hann er Guð í margra þeirra augum og hann er farin að hegða sér þannig...

Konný (IP-tala skráð) 19.12.2006 kl. 17:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband