So far...

...er árið 2007 búið að vera bara nokkuð ágætt. það hefur verið nóg að gera, sem er kannski bara fínt því þá líður tíminn hraðar og Bali nálgast óðum.

-var ég ekki annars búin að segja ykkur að ég er að fara til BANGKOK & BALI !!!!

-hmm ég er sennilega ekki búin að minnast á það í hvert einasta skipti sem ég hitti ykkur, svo núna vitiði það........eftir aðeins 120 daga!!!! gott að það er ekki hlaupár því þá væru 121 dagur! hjúkket

-brjálað að gera skólanum. erum búin að vera í verklegu og halda fyrirlestra eins og crazy people!!

-það kom ljósmyndari og tók mynd af bekknum okkar í tíma. það á nebbla að gefa út nýjan kynningarbækling fyrir deildina og þótti að sjálfsögðu við hæfi að hafa hann stútfullan af myndum af fallegasta fólkinu í deildinni.

-hef komist að því að LÍN er alveg jafn veruleikafyrrt stofnun og hún var á síðasta ári. ég fæ heilar 21.000 krónur til þess að kaupa mér bækur. ég er í 5 kúrsum og bara búin að kaupa mér bækur fyrir 1 kúrs og þær kostuðu 20.161 krónu!!! hva á ég þá ekkert að kaupa mér bækur fyrir hina kúrsana???? greinilega ekki gert ráð fyrir að ég þurfi þess. YES! loksins önn þar sem ég þarf ekkert að lesa!!

-sibba stóra systir er ekki ennþá orðin mamma en hún átti samt að verða það 11.janúar

-við heiður eigum 34.627 krónur inná "förumsamanístelpuferðsumarið2008" bankareikningnum okkar ;)

knús Dísa Diggs

c_documents_and_settings_sigurbjorg_my_documents_my_pictures_eeg_dsc00647.jpg

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

gaman að fá smá fréttir af þér:=)

konný (IP-tala skráð) 18.1.2007 kl. 19:34

2 identicon

Var einimtt að hugsa um þennan reikning okkar og hvað "við" ættum mikið inni á honum. Ætli ég eigi ekki fyrir kókdós í fluginu og þú restina... eða hvað?

Svo læturðu væntanlega vita þegar Sibban verður mamman!

Núna eru bara 118 (já, góðan daginn, get ég aðtoðað) þangað til þú ferð til Balí! 

Heiður (IP-tala skráð) 19.1.2007 kl. 02:29

3 Smámynd: Eydís Huld

þú átt 12 og ég á 22 þúsund. en saman eigum við vextina, sem eru heilar 627 krónur sem hlýtur nú að vera nóg fyrir kókdós handa okkur báðum;)

Eydís Huld, 19.1.2007 kl. 12:45

4 identicon

góðar stelpur - keep on saveing

auðvita vill hann taka myndir af myndarlegu fólki ... vona innilega að þessi mynd fari inn á kynningarbæklinginn - hehe

 knússssssssss frá akureyrinni

ólöf daða (IP-tala skráð) 21.1.2007 kl. 22:29

5 identicon

Heyrðu kona... nú skalt þú fara að senda mér reikningsnúmerið *aftur* svo ég geti farið að leggja eitthvað inn á þennan reikning... og geti verið með í montinu yfir stelpuútlandaferðinniokkar2008!!! c",)

Berglind (IP-tala skráð) 22.1.2007 kl. 20:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband