34 dagar!!!!!!!
Laugardagur, 14. apríl 2007
jeremías hvað það er stutt þangað til við förum til Bangkok og Balí 34 dagar
við fórum að sækja flugmiðann í gær. fórum fjórar saman, brjálaður stemmari. ohh ég er að farast úr spenningi!!
en hér er smá reikningsdæmi fyrir ykkur:
3 tíma flug fram og til baka á milli Kef og Köben.... - 23.990 krónur!
5 tíma flug fram og til baka á milli Bangkok og Balí, gisting á 4 eða 5 stjörnu hóteli á Balí í 12 nætur með morgunverði held ég, 5 túristadagsferðir......- alls gerir þetta heilar 23.400 krónur!
sjáiði eitthvað athugavert við þetta dæmi????
djös..... okraða og einangraða sker sem við búum á
knús Dísa Diggs
Athugasemdir
Bíddu... þetta passar ekki. Er þetta ekki eitthvað "fiffað" hjá þér? Ertu búin að draga frá það sem þið söfnuðuð fyrir og þetta er það sem stendur eftir???
Hvað er maður að ferðast innan Evópu, þetta er BARA kjánalegt!
Heiður (IP-tala skráð) 14.4.2007 kl. 13:18
Þetta er náttúrulega bara rugl.......en ég verð að farað drifa mig að ná í miðann:)og borga rest að sjálfsögðu.....
Guðrún (IP-tala skráð) 14.4.2007 kl. 14:31
Jiminn .. þetta er ekkert smá mikið okur !!
Dísa (IP-tala skráð) 14.4.2007 kl. 15:27
já þetta er náttla fáránlegt! og heiður ég á alveg eftir að gera ráð fyrir peningunum sem við söfnum sem verður reyndar ekkert agalega mikið. en það er bara mesti kostnaðurinn að koma sér út úr Evrópu. flug báðar leiðir milli köben og tælands + gisting á 6 nætur í bangkok kostar ca. 115þúsund!!!
Eydís Huld, 14.4.2007 kl. 19:00
ohhhhh öfund;)
Alla (IP-tala skráð) 14.4.2007 kl. 21:28
OOOOOOOOOooooooooo maður!!! Þetta verður tveimur orðum sagt ,,nice stöff" hóly crap hvað þú átt þetta margfalt inní..öss löngu komin tími á utanlandsferð kona!! En STORT KNUS til þín
HILdúa
hildur aðalbjörg (IP-tala skráð) 15.4.2007 kl. 19:41
Isss Hildur, hún er alltaf á Spáni...Já...sko bara ALLTAF
Heiður ABBÓ (IP-tala skráð) 16.4.2007 kl. 16:30
ekki nema 29 dagar núna;)
Konný (IP-tala skráð) 20.4.2007 kl. 10:28
Bloggaðu kona.....
konný (IP-tala skráð) 21.4.2007 kl. 11:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.