mmmmmm

var að koma af Tapas barnum með bekknum. shit hvað ég er södd! nautakjöt með lakkríssósu, hörpuskel og beikonvafðar döðlur og fleira góðgætiWink gaman að sitja svona allt kvöldið borðandi og blaðrandi en ekki bara klára matinn á korteri og fara svo eins og maður gerir nú yfirleittSmile

fór á tónleika með Nýdönsk í gær. Geggjað gaman!!!! var eiginlega búin að gleyma hvað þetta er ótrúlega skemmtileg og góð hljómsveit. Takk HeiðurSmile já eða öllu heldur takk Jói fyrir að beila á Heiði þannig að ég fékk að fara í staðinn fyrir þigWink

sniðugt að svona kærastar séu alltaf að beila svona hægri vinstri! fór einmitt með Djúdjú á leikritið Killer Joe um þarsíðustu helgi af því kærastinn hennar beilaði. múhahaha. mjög fínt leikrit. á samt aldrei eftir að líta kjúklingabita frá KFC sömu augum afturWink

svo hélt Sigrún upp á afmælið sitt heima hjá mér á laugardaginn.  fondú og fjörGrin fórum í bæinn þar sem var reyndar alltof mikið af fólki svo maður var allstaðar í kremju. en svo sváfu þær allar heima hjá mér í 39 fermetra íbúðinni.....íbúðin var bara ein stór flatsæng hehe en stemmari yfir þessuWink

á föstudaginn ætlum við Heiður og Kónga að fara að sjá söngleikinn Leg. hlakka rosa til!

....hmm voðalega virðist fátæki námsmaðurinn eiga endalaust mikið af peningum hehe 

ooog svo kláraði ég season all kryddið mitt á föstudaginn en það átti að renna út 1.nóv´07. er hægt að biðja um betri nýtingu eða...?

knús Dísa Diggs, ó svo mikil Diggs þessa daganaGasp


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir kvöldið!!! Geggjaðir tónleikar, hí á Jóa bara (æ, samt ekki.... hann er eins og hamstur...).

 Er Leg söngleikur?? vissi það sko ekki, heyrði bara "leikhús?" og sagði "jaháts". Það er samt fínt.... hlakka til!

Annars var síðasti pistill snilld!!! Var sko bara að lesa hann núna.

Heiður (IP-tala skráð) 31.10.2007 kl. 14:31

2 identicon

Nóg að gera hjá þér skvísa!!!

Sigrún (IP-tala skráð) 31.10.2007 kl. 18:31

3 identicon

Hehehe snild með kriddið;) Þú ert svo fyndin;) En já takk fyrir djamið sl helgi;) Lov jú beib;)

Alla (IP-tala skráð) 1.11.2007 kl. 21:26

4 identicon

Bara ad segja, hello. Hlakka til ad hittast... alveg fullt.

Ásta (IP-tala skráð) 5.11.2007 kl. 10:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband