vó hvert fór vikan eiginlega???????

dísös hvað þessi vika leið hratt!!! fór algjörlega framhjá mér og veit ekki einu sinni hvað ég gerði í vikunni, hef sennilega sofið í 3 daga eða eitthvað.

en ég byrjaði vikuna ótrúlega vel!!!! á mánudaginn fékk aftur túrbóælupest eins og ég fékk á milli jóla og nýárs. ég leyfi mér þó að varpa fram menntaðri ágiskun um að þetta sé nú kannski aðeins meira en ælupest og ég held hreinlega að ég hafi fengið gallsteinakast. ég hef aldrei upplifað aðra eins verki og ég ældi ca. 20 sinnum (er ekki að ýkja) og ég svitnaði og svitnaði og skalf úr kulda. þegar ég var búin að æla ca.10-12 sinnum var ég svo máttlaus að ég lagði mig í sturtunni því ég einfaldlega gat ekki staðið upp. skalf úr kulda þrátt fyrir 2 teppi, sæng og 3 peysur. mér var nú alveg hætt að standa á sama á tímabili og ég tók útidyrahurðina úr lás ef einhver þyrfti nú að koma til mín og bjarga mér. eftir þessa líka þvílíku 4-5 klst. törn þá sofnaði ég bara í sturtunni og svaf þar um nóttina.  eins gott að ég er með stóra sturtu! svo var ég alveg helaum í maganum næstu daga og ég fékk ekki matarlyst fyrr en á miðvikudeginum. get nú ekki sagt að ég mæli með þessu! hugsa að ég fari nú til læknis ef þetta gerist aftur!!!!!

helgin var bráðskemmtileg! eyddi allri helginni í heimildaleit og að læra fyrir lyfjagreiningartæknipróf. það jafnast ekkert á við gott laugardagskvöld að lesa um úrhlutun og TLC.  svo spennandi!!!!

jebb that´s my life these days;) bíð óþreyjufull eftir því að það verði aðeins minna óspennandi!

kveðja pirr.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æ dúllan mín, þú verður að láta vita þegar þú ert svona veik. Maður getur þá komið og reynt að líta eftir litlu systur. Eða allavega verið móralskur stuðningur og komið með eitthvað að drekka eða eitthvað.

Sibba stóra sys (IP-tala skráð) 12.3.2007 kl. 16:25

2 identicon

ÆJÆJÆJÆJÆJJÆJÆJÆJÆJJJJJ mér líst ekkert á þetta eydís mín!!!!! Öss...en lovísa fékk gallsteinakast um jólin og allt var rifið úr henni, ég held að þú eigir að tékka á þessu

KNÚUUUUUS hildúa 

hildur (IP-tala skráð) 12.3.2007 kl. 19:05

3 identicon

úff dúllus... þú ert nú meiri þrjóskupúkinn... það á að fara til læknis þegar svona gengur á....

knús og kram frá okkur.
love jú

Konný (IP-tala skráð) 12.3.2007 kl. 22:35

4 identicon

Shit Eydís!!! Þetta er svakalegt, trúi ekki að þú hafir ekki hringt í neinn!!

Vonandi gengur samt allt hitt spennadi dótið vel og styttist nú í afmælisdaginn. Þá kemurðu nú með partýsögur. Er manni boðið í köku? 

Heiður (IP-tala skráð) 14.3.2007 kl. 20:34

5 Smámynd: Eydís Huld

nei Heiður þú ætlaðir að bjóða mér í köku og breskan bjór!!! manst´ekki?

Eydís Huld, 14.3.2007 kl. 20:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband