Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2007

20 dagar (og nokkur skítlétt próf) í Bangkok;)

Þetta er stjörnuspáin mín fyrir daginn í dag:

Þú þarfnast tímapressu. Annars dregst verkið von úr viti. Fjárhagsleg endurskoðun er það sem mun gera gæfumuninn í framkvæmdum þínum.

 

tímapressa.....check!  already have that, LEN á mánudagFrown

fjárhagsleg endurskoðun.....hmmm! haldiði að Sella taki VISA???Woundering

 


"Áfram tussur!" *klappklapp*klappklapp*klapp*

Hildur vinkona er náttúrulega bara snillingur frá A til Ö og hefur nú tekið upp á því að vera orðin íþróttaálfur mikill! hún er orðin svo mikil íþróttaálfur að hún og lesgrúbban hennar í sjúkraþjálfuninni í Árósum eru búnar að skrá sig í maraþon í Berlín í september. 

þetta er kafli úr síðasta blogginu hennar: 

Annars er nú best að útskýra það ef einhver annar ætlar að leggja leið sína þangað að stelpurnar voru alveg ólmar í það að kalla hópinn okkar ( við sem sagt hlaupum sem lið eða eitthvað svoleiðis, erum allaveg hold) ,,Tussurnar" a íslensku! Ég er eins og gefur að skilja frekar miður mín yfir þessu en það var ekki hægt að fá þær af þessu. En þetta á sér útskýringu. Þeir sem vita það ekki þá eru ,,stelpur" á dönsku ,,tøser" og nota stelpurnar mikið þetta orð ,,kom nu tøser" ,,hvad så tøser" o.s.frv. Ég átti alveg bátt með mig, og varð alltaf hálf beygluð þegar þær sögðu þetta í bryjun og sagði þeim að þetta hljómaði í mínum eyrum sem ,,tussa" og bað þær vinsamlegast um að nota bara nafnið mitt. En að sjálfsögðu sló þetta alveg í gegn og eingöngu notað! Þannig að við erum ,,Stelpurnar" í þeim skilningi í Maraþoninu bara íslenskugerð....eða eitthvað svoleiðis...

 

 

LoL og eins og bent var á þá myndu hvatningarorðin vinsælu "go girl" verða að "áfram tussa" !! mig langar svo að fara til Berlín til þess að geta hrópað hástöfum "áfram tussa" án þess að nokkur kippi sér upp við það!! það væri svo mikil snilld!! who´s with me???


Ertu Quassia með biturgildi 17.000.000???

......get bara ekkert að því gert vinur/vina þó líf þitt sé ekki eins spennandi og innihaldsríkt og mitt líf er þessa daganaGrin þýðir ekkert að vera bitur útaf því!! en þér til huggunar þá er aglýkonið þitt ummyndaður tríterpen og það sama er nú ekki hægt að segja um mig;)

byrjuð er hin eilífa barátta gegn því að snúa sólarhringnum við. lét Gunnu Sys hringja í mig klukkan 9 í morgun og lóðsa mig fram úr rúminu, annars hefði ég bara snoozað áfram. og núna 1oghálfum klukkutíma seinna er ég búin að vaska upp, þurrka af, moppa gólf, borða og blogga, allt til þess að reyna að halda mér vakandi. það er ekki að virka. ætla að fara niður í 10-11 og fá mér kaffi!

það er bara svo erftt að snúa sólarhringnum rétt þegar maður er í prófum, því á milli 22 og 02, þá er spenningurinn svo mikill að það er ómögulegt að fara að sofa fyrr en maður er búin að lesa þetta og þetta og þetta og svo kannski líka þetta. svo reynir maður að sofna en getur það ekki því mann dreymir um alkalóíða sem eru berir á Balí með Campari.

já og svo breytti ég aðeins könnuninni eftir að hafa verið sökuð um rangflokkun, bjaga, röskun og mögulega týpu 1 villur og jafnvel þeir grófustu sökuðu mig um týpu2 villuShocking heita bara allir Anna Birna núna???

annars eru lybbarnir að rústa könnuninni! ástæðan fyrir því er annað hvort sú að ég á mér enga fortíð því ég fæddist ekki fyrr en ég byrjaði í lyfjafræðinni eða að núna eru lybbar að læra fyrir próf og fara þess vegna sama bloggrúntinn ca. 10 sinnum á dagWhistling

jæja Eydís farðu að læra!


jó jó siggalafó

...taka þátt í könnuninni minni píbol!!!! hún er hérna rétt vinstra megin! koma svo!!

mmöööööh..... nenni ekki að læra og geri helst allt annað núna en að læra. er meira að segja búin að skoða sölubæklinginn hjá Iceland Express og ákveða hvað ég ætla að kaupa í vélinni á leiðinni út til Köben. oft hef ég verið kreisí spennt fyrir utanlandsferð en ALDREI svona kreisí!!!!! en ég meina hvort haldiðið að sé skemmtilegra að skoða: lyfja-og efnafræði náttúruefna eða drasl sem hægt er að kaupa í flugvélinni sem þú þarft að fljúga í til þess að komast loksins loksins til Bangkok og Balí????????????

Dísa Diggs


Djöfulsins númer 12!!!!!

...já það er sko ekki gott að vera númer 12 í röðinni í að velja sér mastersverkefni!! ég hef ekki áhuga á það mörgu á þessum lista að líkurnar á að áhugaverðustu verkefnin verði frátekin eru yfirgnæfandi! Eygló smeygló númer 1Angry. og svo voru strákarnir að tala um að ég hefði svindlað með því að merkja miðana eða eitthvað álíka því þeir lentu svo aftarlega.....ef ég hefði ætlað að svindla þá hefði ég nú gert það almennilega og sett mig hærra en í fokking 12. sæti!!!!!

og þið skuluð ekki láta ykkur detta það í hug að kommenta um að 12.sæti sé betra en 13.-20.sæti og eitthvað álíka bla bla bla..... það er alveg eins og að segja manni að fegurðin komi að innan, þolinmæði sé dyggð og að betra sé autt rúm en illa skipað....... allt agalega skynsamlegt og fallegt en hjálpar manni bara ekki rass akkúrat á því augnabliki!!!!!

annars fór ég uppí sumarbústað með Guðrúnu, Elínu, Sibbu, Flóka og Ronju. Gisti 2 nætur og hafði það alveg agalega gott!!! lék við Ronju, knúsaðist með Flóka, spiluðum Ticket to Ride , fórum í flugdrekakeppni, egg&beikon í morgunmat og syndsamlega góður grillmatur í kvöldamat ...mmmmmm.....takk fyrir mig stelpurSmile

hurru svo keypti ég mér svakalega fína ferðatösku á 50% afslætti í pennabúðinni hennar Kóngu. er nebbla að fara til útlanda eftir 26 dagaGrin

túdúls Dísa Diggs


34 dagar!!!!!!!

jeremías hvað það er stutt þangað til við förum til Bangkok og BalíGrin 34 dagarGrin 

við fórum að sækja flugmiðann í gær. fórum fjórar saman, brjálaður stemmari. ohh ég er að farast úr spenningi!!

en hér er smá reikningsdæmi fyrir ykkur:

3 tíma flug fram og til baka á milli Kef og Köben.... - 23.990 krónur!

5 tíma flug fram og til baka á milli Bangkok og Balí, gisting á 4 eða 5 stjörnu hóteli á Balí í 12 nætur með morgunverði held ég, 5 túristadagsferðir......- alls gerir þetta heilar 23.400 krónur!

sjáiði eitthvað athugavert við þetta dæmi????

djös..... okraða og einangraða sker sem við búum áAngry

knús Dísa Diggs


And the winner is....

.....my friend JakeWink sem þýðir að ég verð að hafa fötin mín í töskunni þinni Eygló því GuguLind verður í minniGrin aæt???

en að mun mikilvægari málefnum....á einhver gamlan tölvuskjá til þess að lána mér???? skjárinn á fartölvunni hjá mér dó nefnilega og mér var sagt að ég gæti bara tengt tölvuna við annan skjá. anyone??????

því fyrir utan það að vera fötluð án þess að hafa tölvu, þá er ég soldið mikið til í að ná í fullt af skjölum sem é gvar svo vitur að geyma bara í tölvunni minnErrm

Dísa Diggs


Those were the days....

....of our lives....

systir konnsu var að gramsa í gömlum myndum uppí skóla og fann að sjálfsögðu nokkrar myndir af okkur...hehehe....ákvað að stela nokkrum af síðunni hennar, fleiri myndir hjá konnsu ef einhver hefur brennandi áhuga;)

bekkjarmynd

10.bekkur 

Hvar er Eydís?

 

 

 

 

 

 

María, Eydís og Sigrún

9.bekkur

Hvar er Eydís?

 

 

 

 

 

 

 

heimilisfræði

1.bekkur

Hvar er Eydís?

 

 

 

 

 

 

 

Harpa og Eydís

Hvar er Eydís?

 

 

 

 

 

 

 

 

Vinningshafar getraunarinnar fá eina óskaWizard

túdúls Dísa Diggs


Sætustu sætubaunirnar;);)

4daga og 9vikna4daga 9 vikur á milli þeirra, ekkert smá mikill munur á þeim!!!

 

 

 

 

 

 

 

Flóki stóri og Eydís litla

 

Flóki Stóri að passa Eydísi litluHeart

 

 

 

 

 

 

Flóki módel

 

 Flóki krúttsprengja;)

 

 

 

 

 

 

 


ó mamma gemmér rós í hárið á mér....

 ....svo tveir strákar verði kannski skotnir í mér.......  ok allavega einn!Blush 

agalega skemmtilegt partí hjá konný í gær;) takk fyrir kvöldið kæru vinir! konný var búin að downloada fullt af lögum frá gelgjuárunum og við blöstuðum alveg eins maniacs og nutum þess að það myndi enginn reka okkur heim því klukkan væri orðin svo margt og þurftum ekki að hafa áhyggjur af því að bæta vatni í vodkaflöskurnar svo enginn myndi fatta að við stálum úr þeimCool  skreytingarnar voru grænir hlunkar, kók í dós og bingókúlur;);););)

ég ætlaði nú reyndar ekkert á fyllerí en það fór nú á annan veg en ég ætlaði mérWhistling var ennþá vel hífuð þegar ég kom heim rétt fyrir 7. átti sko 13 ára fermingarafmæli í gær svo það var nú ærin ástæða til að fagna!

ooog what-the-fuck-have-I-been-doing-kreppan er komin aftur!!

þetta var sennilega ekki "the only episode" sem ég fékk um daginn. ég hef það á tilfinningunni að þetta verði mörg season með örlítið minna myndarlegum karlmönnum en í Grey´s. það sem triggeraði þennan episode var samtal sem ég átti í gær við kunningja minn. það þykir víst ekkert voðalega fínt að vera næstum þrítugur og aka um á bíl sem fer yfirleitt í gang og ekki hægt að hafa kveikt á ljósunum og útvarpinu á sama tíma!

þetta verða því mín helstu rök í grátbæningarbréfum mínum til LÍN um að fá meira en f.... 75þúsund á mánuði! verð nebbla að kaupa mér nýjan bíl og rós í hárið á mér. work with me now!!

 

útskrift

Þetta er mynd af okkur vinkonunum þegar við útskrifuðumst úr 10.bekk;)

Alla, ég, Konný, Sigrún og Dísa.

JÁ!!!!!!ég veit að ég var strákaleg á þessum tíma!

 

 

 

 

 

shit hvað ég er alltof þunn til að fara að læra. vissi að helgin myndi fara í steikAngry

 

túdúls Dísa Diggs


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband