Kominn tími á hugvekju held ég bara!

það er rólegt hjá manni þessa dagana, hangi á netinu á milli þess sem ég geri tilraunir til þess að taka til í þessari líka svakalega stóru íbúð sem ég bý í.....

mín bara búin með lyfjafræðina W00t   ótrúlega skrýtið að þessu 5 ára erfiða en jafnframt skemmtilega tímabili sé að ljúka.... bara sjálf útskriftin eftir þann 14 júníGrin

vörnin á ritgerðinni gekk bara mjög vel, var örlítið stressuð fyrst en svo fór það um leið og ég byrjaði að tala á fullu. en vááá hvað það var mikill léttir þegar það var búið!!! OMG  hvað ég var eitthvað fegin, ánægð og afslöppuð á þeim tímapunktiWink

Vörnin 004

 

 

og svo er það bara Danmörk á miðvikudaginnGrin æ það verður ótrúlega gaman að eyða smá tíma með hallærisgenginu úr MAHeart. Við Heiður förum til Hildar í Árósum á miðvikudag og svo kemur Ásta þangað á fimmtudeginum. Á laugardeginum förum við svo heim til Ástu í Svíþjóð og eyðum smá tíma þar áður við höldum svo aftur til Köben. Þetta verður án efa alveg rosalega skemmtileg ferð og hún er búin að halda í mér lífinu í gegnum þetta blessaða mastersverkefni!

Hér eru svo nokkrar myndir af bekknum síðan á fimmtudaginn, sem var GÓÐUR DAGURWizard

Hópmynd 2

 

Hópfaðmlagið sívinsæla;)

 

Sigrún gaf okkur öllum medalíu fyrir góðan árangur;)

 

Sigrún, Guðrún og Eygló með medalíurnar sínar;)

Vörnin 036

 

Vörnin 038

 

 

 

og ég skora á ykkur að KOMMENTA ef þið eruð á annað borð að lesa bloggið mitt og hana nú!!!!!!!

 

Hilsen, Dísa Diggs


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vá!! Innilega til hamingju með áfangan og góða skemmtun í Köben, bið að heilsa "hallærisgenginu" :-)

Elín Björk (IP-tala skráð) 20.5.2008 kl. 09:57

2 identicon

Takk fyrir síðast Dísa! Þetta var svaka stuð - þú hefur fengið nokkuð góða hópmynd sé ég! En eine gute Reise og góða ferð. Við sjáumst sem fyrst í sumar;)

Erla (IP-tala skráð) 20.5.2008 kl. 10:38

3 Smámynd: ronja06

Kvitt kvitt... Þori ekki öðru

ronja06, 20.5.2008 kl. 14:30

4 identicon

Innilega til hamingju með áfangann - og vá hvað það verður ekki leiðinlegt hjá ykkur úti :)

Lovísa (IP-tala skráð) 20.5.2008 kl. 15:19

5 identicon

þú ert lang flotttttust til hamingju með þetta allt saman

kv Miðtún

miðtúnið (IP-tala skráð) 20.5.2008 kl. 18:11

6 identicon

Þú ert náttúrulega langflottasti lybbinn;)

Konný (IP-tala skráð) 20.5.2008 kl. 18:40

7 Smámynd: GLind

Komment komment krúsan mín!! Ég er ekki frá því að ég sakni þín strax honní! Ég veit ekki hvernig þetta verður þegar þú/þið verðið í útlöndum í ár! OMG!

GLind, 20.5.2008 kl. 22:56

8 identicon

Til hamingju með þetta 80' ;)  og góða skemmtun úti

Sigrún (IP-tala skráð) 20.5.2008 kl. 23:03

9 identicon

ég veit ekki hvað ég er að gera þér til geðs með því að kommenta hér, þú kommentar aldrei hjá mér!!! ;) Annars bara góða skemmtun úti og reyndu nú að detta í sleik....

Eygló (IP-tala skráð) 20.5.2008 kl. 23:32

10 identicon

Til hamingju með áfangann knúsan mín.  Ætli þú og Heiður séuð ekki bara að stíga um borð í flugvélina núna... alla vegna bráðum. Góða ferð, hlakka til að sjá þig á morgun.

Ásta (IP-tala skráð) 21.5.2008 kl. 07:19

11 identicon

Hæ sæta

til hamingju með áfangann..... frábært að þetta er búið :) Góða ferð og skemmtun í útlandinu ;)

Halldóra (IP-tala skráð) 21.5.2008 kl. 13:30

12 identicon

kvitt kvitt...og til hamingju aftur :)

 hilsur að norðan

Dísa (IP-tala skráð) 22.5.2008 kl. 21:18

13 identicon

Sæl skvís og til hamingju með áfangann !!
Það er ekkert smá sem þú ert dugleg ..

Kveðja Dísa skvísa ;)

Dísa (uppáhaldið þitt ) ;) (IP-tala skráð) 27.5.2008 kl. 11:49

14 Smámynd: Eydís Huld

haujj gaman að lesa fullt af kommentum þegar mann kommer hjem fra udlandet;) takk fyrir!!

ferðin var geggjuð!! segi betur frá henni í máli og myndum á næstu dögum:)

Eydís Huld, 29.5.2008 kl. 20:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband