Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2008
jaba daba dúúúúú!!! Perú here we come;);););)
Fimmtudagur, 24. júlí 2008
It´s official!!
Við Eygló erum búnar að fjárfesta í flugmiðum til Perú
Þann 21.október fljúgum við til New York og svo þaðan til Lima í Perú, þar sem planið er að dveljast næsta árið eða svo, læra spænsku og vinna á rannsóknarstofu hjá lyfjafyrirtæki
díses hvað ég er orðin alveg hrikalega spennt!!
Er svona aðeins byrjuð að reyna fyrir mér í spænskunni, verð að fara að verða duglegri því við verðum komnar út áður en við vitum af. Það er nú bara við hæfi að spænska orð dagsins (24.júlí) hérna til hliðar er pasaporte eða vegabréf því ég er bráðum að fara til ÚTLANDA
Nú ef þú veist ekki hvar Perú er, þá er nú bara tími til kominn að vita það!
Hér er kort af Suður-Ameríku og við munum koma til með að búa í höfuðborginni, Lima.
Jæja best að gera sig klára fyrir Damien Rice tónleikana
ohh hvað það er eitthvað gaman að vera til í dag
Ást og friður
Dísa Diggs
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
MÚS 2008 og brúðkaup GuguLindar;)
Sunnudagur, 13. júlí 2008
good times!!!!!
MÚS í ár var bara helvíti skemmtileg þrátt fyrir votviðri og ókristilegar uppvakningar.
Vöknuðum á laugardagsmorgninum þegar það var allt var á floti inní tjaldinu, sem var auðvitað alveg einstaklega ljúf og góð tilfinning. Ég, Kónga og Bebba fórum inní Stykkishólm um 8 leytið til þess að ég gæti fengið far til baka með vinkonu þeirra. Sjaldan hafa sést ferskari manneskjur í bakaríinu þar í bæ!!
Var þá haldið til brúðkaups á Selfossi hjá Guðrúnu Lind og Axel. Ekkert smá fallegt og frábært brúðkaup, þau kunna þetta sko! Verða endilega að gera þetta aftur!
Veislan var haldin í sveitinni hennar Guðrúnar í gamla hænsnakofanum sem búið var að að breyta í glæsilegan sal. Eftir dagskránna tók svo við sveitt dansfestival þar sem Gullfoss og Geysir þeyttu skífurnar og meeeen hvað ég dansaði mikið!!! Held svei mér þá að ég hafi dansað stanslaust í 2 og hálfan tíma! Maður vildi ekki einu sinni taka sér klósettpásu því þeir spiluðu hvern gullstemmarann á fætur öðrum. Djöfull eru þeir skemmtilegir!!
Svo er ég búin að vera sofandi í allan dag alveg búin á því eftir helgina
Hérna eru svo nokkrar myndir úr brúðkaupinu
Lybburnar sætu: Erla, ég, Eygló, Katla Guðrún Stefáns, Sigrún Sif og svo auðvitað GuguLind;).
Erla varstu að koma frá Spáni eða...?
Vísindateymið EEG;)
Með nördagleraugun;)
Brúðar"valsinn" skemmtilegi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)