Færsluflokkur: Bloggar
34 dagar!!!!!!!
Laugardagur, 14. apríl 2007
jeremías hvað það er stutt þangað til við förum til Bangkok og Balí 34 dagar
við fórum að sækja flugmiðann í gær. fórum fjórar saman, brjálaður stemmari. ohh ég er að farast úr spenningi!!
en hér er smá reikningsdæmi fyrir ykkur:
3 tíma flug fram og til baka á milli Kef og Köben.... - 23.990 krónur!
5 tíma flug fram og til baka á milli Bangkok og Balí, gisting á 4 eða 5 stjörnu hóteli á Balí í 12 nætur með morgunverði held ég, 5 túristadagsferðir......- alls gerir þetta heilar 23.400 krónur!
sjáiði eitthvað athugavert við þetta dæmi????
djös..... okraða og einangraða sker sem við búum á
knús Dísa Diggs
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
And the winner is....
Þriðjudagur, 10. apríl 2007
.....my friend Jake sem þýðir að ég verð að hafa fötin mín í töskunni þinni Eygló því GuguLind verður í minni
aæt???
en að mun mikilvægari málefnum....á einhver gamlan tölvuskjá til þess að lána mér???? skjárinn á fartölvunni hjá mér dó nefnilega og mér var sagt að ég gæti bara tengt tölvuna við annan skjá. anyone??????
því fyrir utan það að vera fötluð án þess að hafa tölvu, þá er ég soldið mikið til í að ná í fullt af skjölum sem é gvar svo vitur að geyma bara í tölvunni minn
Dísa Diggs
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Those were the days....
Fimmtudagur, 5. apríl 2007
....of our lives....
systir konnsu var að gramsa í gömlum myndum uppí skóla og fann að sjálfsögðu nokkrar myndir af okkur...hehehe....ákvað að stela nokkrum af síðunni hennar, fleiri myndir hjá konnsu ef einhver hefur brennandi áhuga;)
10.bekkur
Hvar er Eydís?
9.bekkur
Hvar er Eydís?
1.bekkur
Hvar er Eydís?
Hvar er Eydís?
Vinningshafar getraunarinnar fá eina óska
túdúls Dísa Diggs
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sætustu sætubaunirnar;);)
Þriðjudagur, 3. apríl 2007
9 vikur á milli þeirra, ekkert smá mikill munur á þeim!!!
Flóki Stóri að passa Eydísi litlu
Flóki krúttsprengja;)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
ó mamma gemmér rós í hárið á mér....
Sunnudagur, 1. apríl 2007
....svo tveir strákar verði kannski skotnir í mér....... ok allavega einn!
agalega skemmtilegt partí hjá konný í gær;) takk fyrir kvöldið kæru vinir! konný var búin að downloada fullt af lögum frá gelgjuárunum og við blöstuðum alveg eins maniacs og nutum þess að það myndi enginn reka okkur heim því klukkan væri orðin svo margt og þurftum ekki að hafa áhyggjur af því að bæta vatni í vodkaflöskurnar svo enginn myndi fatta að við stálum úr þeim skreytingarnar voru grænir hlunkar, kók í dós og bingókúlur;);););)
ég ætlaði nú reyndar ekkert á fyllerí en það fór nú á annan veg en ég ætlaði mér var ennþá vel hífuð þegar ég kom heim rétt fyrir 7. átti sko 13 ára fermingarafmæli í gær svo það var nú ærin ástæða til að fagna!
ooog what-the-fuck-have-I-been-doing-kreppan er komin aftur!!
þetta var sennilega ekki "the only episode" sem ég fékk um daginn. ég hef það á tilfinningunni að þetta verði mörg season með örlítið minna myndarlegum karlmönnum en í Grey´s. það sem triggeraði þennan episode var samtal sem ég átti í gær við kunningja minn. það þykir víst ekkert voðalega fínt að vera næstum þrítugur og aka um á bíl sem fer yfirleitt í gang og ekki hægt að hafa kveikt á ljósunum og útvarpinu á sama tíma!
þetta verða því mín helstu rök í grátbæningarbréfum mínum til LÍN um að fá meira en f.... 75þúsund á mánuði! verð nebbla að kaupa mér nýjan bíl og rós í hárið á mér. work with me now!!
Þetta er mynd af okkur vinkonunum þegar við útskrifuðumst úr 10.bekk;)
Alla, ég, Konný, Sigrún og Dísa.
JÁ!!!!!!ég veit að ég var strákaleg á þessum tíma!
shit hvað ég er alltof þunn til að fara að læra. vissi að helgin myndi fara í steik
túdúls Dísa Diggs
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Tinna Eydís;););););)
Fimmtudagur, 29. mars 2007
já það er nýja nafnið á prinsessunni
þeim fannst Theodóru nafnið ekki passa við hana svo þau ákváðu að breyta því
bara fyndið!!! en það er betra að breyta því núna heldur en að fá bakþanka seinna meir!
I´ll keep you posted for any more changes
knús Eydís senior (allavega ennþá)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fædd er Theodóra Eydís Arnarsdóttir;);););)
Miðvikudagur, 28. mars 2007
já enn bætast dísirnar við mafíuna
Arnar bróðir og Kaja eignuðust þriðju stelpuna sína í gær. 51cm og 3400g. Agalega sæt!!
Ég ætla nú bara að kalla hana Eydísi, hvað svo sem aðrir ætla að kalla hana
Arnar bróðir hringdi í mig í gær og spurði hvort ég vildi fyrirgefa þeim fyrir að koma henni ekki í heiminn á afmælisdaginn. Ég sagðist nú þurfa góðan tíma til að hugsa mig um hvort ég gerði það! "en ef hún heitir nafninu þínu? myndiru þá fyrirgefa okkur?????" ;););););););)
Systkinin Helgi, Sandra Dís, Þórdís,Dagbjartur og Theodóra Eydís;)
Nafnan mín;););););)
Sætu systurnar;)
knús&koss Eydís eldri;)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
shitturinn titturinn mellan og hóran!
Þriðjudagur, 27. mars 2007
ég er orðin svo gömul.......og fullorðins
alltaf þegar ég á afmæli þá fer ég að hugsa um þegar ég var yngri og fannst fullorðinsárin svo langt í burtu. ég hélt t.d að á 27 ára afmælisdeginum yrði ég komin með Ken, hús, jeppa og 2,7 börn. væri orðin ótrúlega vitur og búin að gera alla þá hluti sem fólkið í bíómyndunum gerir
hmmmmm......what happened???? hvað er ég eiginlega búin að vera að gera????
til að koma í veg fyrir að þetta gerist aftur á næsta afmælisdegi, þá er ég búin að setja sjálfri mér nokkur mission!!! þau eru mjög misjöfn og sumir myndu kannski telja nokkur þeirra alveg yfirmáta fáránleg en....... ég er búin að senda sjálfri mér nokkur e-mail á futureme.org , þannig að ég geti komið skilaboðum til framtíðarmín frá frústreraðri núverandimér með von um að ég drullist til að leysa eitthvað af þessum verkefnum
ég ætla nú ekki að gefa upp hvað stendur í þessum meilum en þó er aldrei að vita nema ég blaðri frá þeim þegar ég er búin að massa þessi mission í tætlur ;) mér finnst ég þó verða að taka fram að þessi mission fela ekki í sér Ken, hús, jeppa og 2,7 börn fyrir næsta afmælisdag!!!
takk fyrir allar afmæliskveðjurnar!!!!!!!!!!!
túdúls Dísa Diggs
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
það er í tísku að vera nörd!
Fimmtudagur, 22. mars 2007
Flóki litli (sonur systur minnar) var skírður síðasta sunnudag. Sandra og Dagbjartur (börn bróðurins míns) voru algjör krútt þegar þau voru að lesa ritningarlestur, skiptu með sér línum. bara krúttlegt!!! trúi ekki að þau séu orðin nógu stór til að lesa!
-bekkjarpartýið á föstudaginn var snilld. náðum samt ekki að klára allan bjórinn
-hey ég hitti Ídu (sem var með mér í bekk í M.A.) þegar ég var í verklegu uppá lansa á þriðjudaginn! ekki búin að sjá hana í 2 ár;)
-fórum í heimsókn í Lyfjastofnun áðan. verð nú bara að viðurkenna að mér fannst þessi 3 klst. heimsókn mjög áhugaverð og skemmtileg. er næstum því spennt fyrir verkefninu okkar í lögum og reglugerðum um miðlæg og gagnkvæm markaðsleyfi lyfja. svona getur maður verið nörd stundum....get ekki alltaf verið kúl guys
-fannst samt leiðinlegt að komast ekki í jarðarförina hans Hilla pabba hennar Erlu Jónu. alveg týpískt að þessi heimsókn hafi verið á eina fimmtudeginum á önninni sem ég hefði viljað vera annars staðar. hefði viljað fara með Guðrúnu:(
jæja ég ætla að drífa mig á rauðvíns/hvítvíns/matarkvöld með stelpunum í bekknum. það er nebbla enginn skóli á morgun sjáiði til
knús&koss Dísa Diggs
Bloggar | Breytt 23.3.2007 kl. 23:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)