Færsluflokkur: Bloggar
Skemmtileg helgi:):)
Þriðjudagur, 4. mars 2008
já þetta var mjög skemmtileg helgi verð ég nú bara að segja og helgin nánast eingöngu helguð fallega og skemmtilega fólkinu í lyfjafræðinni. Ekki ónýtur tíma það!
Á föstudaginn fórum við 5.árið í óvissuferð í boði Lyfju og það var alveg hrikalega gaman. Byrjuðum á hádegismat og léttu spjalli við Lyfjufólkið og svo var haldið út í óvissuna.
Fórum á fjórhjól. Djöfull var ég léleg á þessu tryllitæki maður en ég var nú öll að koma til svona um það leiti sem við komum til baka.
Svo fórum við á fjöruborðið og meeen hvað humarinn var góður!!!! og hvítvínið líka
Ekki spillti nú fyrir að þeir voru afskaplega örlátir á áfengið
Laugardagurinn einkenndist svo af semi-þynnku sem virtist versna eftir því sem ég fékk fleiri símtöl frá Herberti Guðmunds. Hann átti sem sagt að koma að skemmta fyrir hönd 5.ársins á árshátíðinni og hlutirnir voru víst ekki alveg ganga eins og hann vildi. Við erum að tala um 18 símtöl people! 18!!! díses ég fór meira að segja með símann í sturtu því ég var svo hrædd um að hann myndi hringa og yrði fúll því ég svaraði ekki og myndi bara hætta við. En svo koma hann blessður og tryllti lýðinn!!!
Annars var þetta mjög skemmtileg árshátíð. Skemmtiatriðin frábær og stemmarinn góður í liðinu.
Ég vann samt ekkert í happadrættinu Ég fer sko aldrei aftur á árshátíð lyfjafræðinema!!!
Nú svo byrjaði sunnudagurinn auðvitað á símtali frá Hebba vini mínum. Vildi endilega fá myndir. WTF???
Annars eru fleiri myndir á síðunum hjá Lindinni minni og Kötlu
Jæja best að fara að drulla sér að læra.
Hilsen
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
tíhí..
Mánudagur, 18. febrúar 2008
það er svo gaman að vera í miðjum klíðum við að raka á sér lappirnar þegar pizzasendillinn kemur
úbbs
Dísa Diggs,
ávallt dönnuð
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
ohhh....
Föstudagur, 15. febrúar 2008
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
ohhh....
Þriðjudagur, 5. febrúar 2008
.....ég þoli ekki þegar dótið í kinder-egginu er "saman-sett"
ég vil fá að setja það saman sjálf
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
...en hann var svo sætur!
Miðvikudagur, 23. janúar 2008
Heiður kafnaði næstum því úr hneyksli þegar ég hringdi í Kóngu til að láta hana vita að kærasti hennar til margra ára, Heath Ledger, væri dáinn. Hún var ekki alveg að skilja.....
En það er bara svo ótrúlegt hvað maður setur þetta fólk upp á einhvern stall, sannfærð um að það sé fullkomið þó svo að innst inni viti maður alveg betur. Ég (og flestir aðrir) hef gert þetta síðan ég var ca. 10 ára og að sjálfsögðu hafa idolin breyst eins og ég, þ.e.a.s. nýjum aldri fylgja ný idol. En flest kvenkyns idolin eiga það þó sameiginlegt að hafa ekki fengið almennilega næringu síðan þær voru sjálfar 10 ára því þær eru svo ógeðslega feitar ef það er ekki hægt að telja rifbeinin í þeim.
Svo fullkomnar!
Svo er maður líka svo sannfærður um að þau séu almennt hamingjusamari en annað fólk og öfundar þau agalega þegar þau standa í fullkomnu og rándýru fötunum sínum með fullkomna og breiða brosið sitt á rauðum dreglum úti um allan heim. Þau eru svo hamingjusöm að skuggalega mörg þeirra ákveða að deila þessari gleði óspart með bakkusi og öllum hans bræðrum.
Svo fullkomin hamingja!
Ég gæti trúað að þau séu allavega í topp 5 yfir hæstu tíðni sjálfsvíga miðað við aðrar starfstéttir. Jafnvel númer 1. Sennilega því þau hafa einfaldlega upplifað svo mikla gleði og hamingju að þeim finnst tími til komin að leyfa öðrum að komast að.
Svo fullkomið líf!
Jæja best að fara að læra lyfjahönnun. Einhver verður að búa til lyfin sem gerir lífið fullkomið
![]() |
Heath Ledger látinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Justin Timberlake
Föstudagur, 18. janúar 2008
það gekk eitthvað illa að fara fram úr rúminu í morgun. Vekjaraklukkan hringdi í dágóðan tíma þar sem ég ætlaði aldrei að geta slökkt á henni því ég bara gat engan veginn munað PIN-númerið á vísakortinu mínu...........en svo var víst bara nóg að ýta á STOP-takkann
Góða helgi krúttin mín
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
I´m a candy girl in a candy world
Fimmtudagur, 17. janúar 2008
jæja verður maður ekki að hripa niður nokkur orð svona rétt til þess að geta haldið því fram að maður sé á lífi
er byrjuð á fullu á verkefninu mínu...gengur svona lala. Er þó farin að geta gert brjóstsykurinn án þess að brenna hann en í staðinn brenndi ég mig á puttunum þegar ég var að móta hann til að vísu voru molarnir sem ég framleiddi í dag alveg hrikalega vondir á bragðið að það var allt liðið að tapa sér úr grettum eftir smökkunina tíhí.
fór í Nóa Síríus í gær til að gá hvernig þeir fara að þessu. þetta er náttúrulega agalega pró hjá þeim, eru með agalegt ker fyrir hitunina og svaka græjur til að kæla og móta og solleiðis. Þeir framleiða 50kg í einni lotu á meðan ég er að brasa við 300 grömm í höndunum ooog þeir eru byrjaðir að búa til páskaeggin
það er alveg merkilegt hvað mér finnst þetta ótrúlega girnilegt og spennandi fyrirbæri en svo þegar ég loksins fæ eggið í hendurnar þá borða ég eitthvað smá af því og set það svo inn í ísskáp. ég held ég hafi ekki klárað páskaeggið mitt síðan ég var krakkaskítur.
svo var gönguklúbburinn Snæfríður stofnaður síðasta þriðjudag. ég, Heiður, Kónga og Sigrún tókum svaka gönguferð og fórum svo í pottinn í Laugardalslauginni. Héðan í frá verða þriðjudagskvöld helguð Snæfríði. Held við séum að fara á skauta næsta þriðjudag
jæja ég ætla að fara að horfa á leikinn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Gleðilegt nýtt ár!
Þriðjudagur, 1. janúar 2008
Verkefni ykkar á árinu 2008 er að vera eins hamingjusöm og þessi stelpa....
...púkar eins og þessi.....
..en samt stillt eins og þessi....
Knús og koss til ykkar allra
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Áramótapartý???????
Fimmtudagur, 6. desember 2007
ég auglýsi hér með eftir áramótapartý!!!
mig langar að djamma um áramótin! en ykkur?
Konný langar þig að halda áramótapartý??
Alla langar þig að halda áramótapartý??
Guðrún langar þig að halda áramótapartý?? nei æ maður á frekar að spyrja Elínu að svona löguðu....
Elín langar þig að halda áramótapartý??
Annars finnst mér að ABA og M&M ættu að íhuga samstarf í tölvupóstarsendingum, svona þar sem M&M sendir sinn póst alltaf 2-3svar sinnum en ABA virðist ekki enn vera búin að ná tökum á því að svara sínum tölvupóstum...... nei bara hugmynd
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)