Færsluflokkur: Bloggar
hej hej
Mánudagur, 9. júní 2008
jæja komin tími....
Danmerkur/Svíðþjóðarferðin með hallærisgenginu var yndisleg!!!!!!
Ég held ég hafi aldrei verslað svona mikið á svona stuttum tíma og afgreiðslufólkið í H&M hló að mér þegar ég var að borga.
Svo var þessi vika alveg agalega góð blanda af djammi og hyggeligheitum. Þessar stúlkukindur eru sko án efa ástæðan fyrir því að örlögin sendu mig í M.A.
Jæja nóg af væmni í bili....Hérna eru nokkrar myndir úr ferðinni en ég set fleiri í albúm þegar ég er búin að splæsa mér í meira myndaplássi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Kominn tími á hugvekju held ég bara!
Mánudagur, 19. maí 2008
það er rólegt hjá manni þessa dagana, hangi á netinu á milli þess sem ég geri tilraunir til þess að taka til í þessari líka svakalega stóru íbúð sem ég bý í.....
mín bara búin með lyfjafræðina ótrúlega skrýtið að þessu 5 ára erfiða en jafnframt skemmtilega tímabili sé að ljúka.... bara sjálf útskriftin eftir þann 14 júní
vörnin á ritgerðinni gekk bara mjög vel, var örlítið stressuð fyrst en svo fór það um leið og ég byrjaði að tala á fullu. en vááá hvað það var mikill léttir þegar það var búið!!! OMG hvað ég var eitthvað fegin, ánægð og afslöppuð á þeim tímapunkti
og svo er það bara Danmörk á miðvikudaginn æ það verður ótrúlega gaman að eyða smá tíma með hallærisgenginu úr MA
. Við Heiður förum til Hildar í Árósum á miðvikudag og svo kemur Ásta þangað á fimmtudeginum. Á laugardeginum förum við svo heim til Ástu í Svíþjóð og eyðum smá tíma þar áður við höldum svo aftur til Köben. Þetta verður án efa alveg rosalega skemmtileg ferð og hún er búin að halda í mér lífinu í gegnum þetta blessaða mastersverkefni!
Hér eru svo nokkrar myndir af bekknum síðan á fimmtudaginn, sem var GÓÐUR DAGUR
og ég skora á ykkur að KOMMENTA ef þið eruð á annað borð að lesa bloggið mitt og hana nú!!!!!!!
Hilsen, Dísa Diggs
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
hæ!
Þriðjudagur, 13. maí 2008
2 dagar í vörnina......shit!!..............en það verður sweet þegar þetta er allt saman búið
síðasta helgi var skemmtileg, enda var stofnfundur H.F.Í.
við Eygló höfum ákveðið að beita brögðum, sem nánar má lesa um hér.
Þetta getur maður gert eftir 5 ár í lyfjafræði
jæja best að halda áfram að æfa þennan fyrirlestur svo ég standi ekki í púlti eins og álka
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
ég á að vera að skrifa ritgerð...
Mánudagur, 21. apríl 2008
...þess vegna eyði ég skuggalega miklum tíma á youtube
ohh þetta er eitthvað klikkað......hérna er þetta ;)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
grrrrrrrrrrrrr
Föstudagur, 18. apríl 2008
mmmm ég fór í sturtu í morgun með myndarlega nágrannanum!!!!!
.......að vísu var eitt stykki aumingjalega steyptur veggur á milli okkar...........
.......en ég hef hins vegar ákveðið að láta slíka veraldlega hluti ekki hamla mér í hamingjuleitinni
Ást og friður
Dísa Diggs
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
ég sakna þeirra svo mikið!!!
Miðvikudagur, 16. apríl 2008
já nú er mín sko orðin youtube óð eins og Eygló
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Shit hvað þetta er fyndið!!!!!!!!
Sunnudagur, 13. apríl 2008
ok það getur vel verið að það séu allir löngu búnir að sjá þetta og ég sé bara svona lengi að fatta en allavega........þetta eru fáránlega fyndin myndbönd!!! mæli með að þið horfið á þau í réttri röð;)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Vissuð þið...
Fimmtudagur, 10. apríl 2008
..... að börn, 2 ára og yngri, eru 5 sinnum líklegri til þess að fá þarmasýkingar ef þau drekka fitusnauða mjólk í staðinn fyrir nýmjólk
...spennandi punktur úr lífi Dísu Diggs!
Fylgist með! þeir eru fleiri!!! (vonandi)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
hææææææææææææ!!!
Mánudagur, 7. apríl 2008
ákvað að láta fólk vita að ég er á lífi.... ok ok ég sem sagt á að vera að læra en þá er að sjálfsögðu mun betra að blogga bara þó svo að maður hafi frá afar litlu að segja.
hmmm hvað á ég að segja....
...páskarnir voru skemmtilegir, djamm á föstudeginum, spilakvöld á laugardeginum og kósíheit á sunnudeginum. ég setti inn nokkrar myndir inn í myndaalbúm hér til hliðar
uhhhh ég hef ekkert til að segja því ég geri ekki annað en að ritgerðast þessa dagana. allt að gerast!! en ritgerðarsmíð ganga hins vegar mjög hægt! djöf geta sumir hlutir verið leiðinlegir og djöf geta sumar manneskjur ekki tileinkað sér snefil af sjálfsaga
men hvað þetta er skemmtileg og innihaldsmikil bloggfærsla!!
Ást og friður
Dísa
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)