Færsluflokkur: Bloggar

HAHAHA....

 

Einu sinni voru tvíburar, Burkni og Frosti. Burkni átti gamalt snekkjuræksni. Það vildi til að eiginkona Frosta lést sama dag og snekkja Burkna sökk.

Nokkur dögum síðar hitti gömul kona Burkna og hélt að þar færi Frosti. Hún sagði því: "Ég samhryggist þér, vinur." Burkni hélt að hún væri að tala um snekkjuna og sagði:

"Æ, ég er nú feginn að vera laus við hana. Hún var alltaf hálfgerð drusla. Botninn á henni var allur skorpinn og hún lyktaði eins og úldin ýsa. Hún hélt ekki vatni, var með vonda rauf að aftan og risagat að framan. Í hvert sinn sem ég notaði hana stækkaði gatið og hún lak vatni um allt. Svo fór hún endanlega þegar ég lánaði hana fjórum vinum mínum sem langaði að skemmta sér. Ég varaði þá við að hún væri ekki mjög góð, en þeir vildu notast við hana samt. Svo reyndu þeir allir að fara í hana í einu og hún rifnaði bara í tvennt."

Það leið yfir gömlu konuna

------------------------------------------------------------------

A very loud, unattractive, mean-acting woman walks into Wal-Mart with her two kids in tow, screaming obscenities at them all the way through the entrance. She's dressed in dirty jeans, a greasy t-shirt with holes in it and wearing flip-flops exposing her cracked and filthy toenails. When she yells at the kids,she exposes her yellowed, crooked teeth with more than a few missing.

The Wal-Mart Greeter says, "Good morning and welcome to Wal-Mart. Nice children you've got there. Are they twins?"

The ugly woman stops screaming long enough to say, "Hell no they ain't! The oldest one, he's 9 and the younger one, she's 7. Why the Hell would you think they're twins? Do you really think they look alike?

"No", replies the greeter, "I just couldn't believe someone had sex with you twice."


Lybbaleikar

já lybbaleikarnir voru í gær. við unnum ekki:(  en það var samt mjög gaman og við seldum helling af bolum og bjór. ég er búin að vera með fáránlegan hausverk í allan dag og eyddi deginum í að gera heiðarlega tilraun til þess að lesa eitthvað. gekk ekki vel. ég drakk samt bara 4 bjóra í gær. veit ekki alveg hvað er að manni, þetta hlýtur að vera aldurinn að segja til sín.....

en anyways þá tók ég fullt af myndum ;)

shit hvað ég nenni ekki að það sé mánudagur á morgun!!!

 


It´s official!!!

Búin að borga ferðina til Bangkok og BaliGrin já eða ég er búin að setja það á visa;)hehe;) ég verð nú sennilega ekki búin að borga ferðina fyrr en í fyrsta lagi eftir ár;) but who cares???

þannig að núna er nýja visakortið orðið vel heitt þar sem ég greiddi í dag 147.400kr. fyrir flug og gistingu í Bangkok og Balí. Svo um daginn var ég búin að kaupa farið til Köben fyrir 23.900kr. Saman gerir þetta heilar 171.300kr. Ég hef nú fulla trú á því að velunnarar mínir gefi sig fram um næstu mánaðamót!!!

Það var eitthvað svo ótrúlega gaman að fara á ferðaskrifstofuna og borga þetta þó svo að upphæðin sé skuggaleg. Það gerir þetta eitthvað svo raunverulegt að vera búin að borgaGrin

Ég fékk 8,5 í títrunarprófinu sem var fyrir viku, sem er mjög skrýtið því ég hef aldrei bullað jafn mikið í einu prófi. En flugurnar í Haga segja mér að fólk hafi verið að fá fáránlega háar einkunnir úr þessu prófi miðað við úberbömmerinn, sem við reyndum að drekkja síðar um kvöldið með stífri etanóltítrun! (5 aur takk!!)
maybe we need to thank Jesus Von Godbrand for taking one for the team????????hehe;)

knús&kossar Dísa Diggs

 


Úberlaserpenninn minn;)

guð ég trúi því ekki að ég hafi gleymt að minnast á pennann, nei úberpennann, sem ég vann í Glimeryl lukkuhjólinu í vísindaferðinni í Actavis síðasta föstudag. þvílíkur fögnuður sem braust út í hjarta mínu þegar örin lenti á glimeryl! því þetta er sko ekki bara penni..ó nei, þetta er sko líka laser!! og ekki nóg með það, þá er hægt að draga pennann út og gera hann að bendipriki!! ég lýg þessu ekki!!!!!! haldiði að maður verði flottur á því næst þegar maður heldur fyrirlestur fyrir bekkinn. við vorum nokkur í bekknum sem fengum svona penna. hinir fengu bara nafnspjald sem stendur paxetin á, múhaha (var nú samt ekki hægt að finna eitthvað annað lyf til að hafa á nafnspjaldi?? hmm??)

annars kom úberpenninn minn að verulega góðum notum á djamminu. það er svo auðvelt að spotta myndarlega karlmenn og spyrja stelpurnar hvernig þeim lýst á þennan og þennan og þennan og....      að vísu var mér bent á það að ég var eiginlega að benda á annan hvern kalrmann þarna inni en ekki endilega þá myndarlegu. en það er nú bara (ó)kosturinn við að fara gleraugnalaus á djammiðCool

kveðja með hori, slefi, hósta, hausverk og eyrnabólgu úr EggertsgötunniSick


Allt í hámarki hér á bæ!!

það er hámark letinnar að vera svöng en nenna bara ekki niður í búð. sérstaklega þegar búðin er á 1.hæðinni og maður býr á 3.hæð. þarf ekki einu sinni að klæða mig, allavega ekkert voðalega mikið.

það er líka hámark letinnar að vita ekki hvað er langt síðan maður hefur þrifið íbúðina sína. þær minningar fara sennilega að flokkast sem bernskuminningar. 

en þar sem ég er nú vísindamaður í meistaranámi með gæðin í hámarki, kýs ég að líta á lífvirknina undir rúminu mínu sem "líffræðiverkefni in the making". ég ætla að kanna það hvort sífellt áreiti frá bakteríum og almenns óþrifnaðar sé í raun ekki bara örvun fyrir ónæmiskerfið og komi þannig í veg fyrir ónæmiskerfisatvinnuleysi á borð við astma og exem. þetta er kannski ekki slæm hugmynd fyrir lokaverkefni. ég er nefnilega í meistaranámi sjáið þið til. skrýtið hvað það kemur enginn öðruvísi fram við mig þó ég sé í meistaranámi. mjög skrýtið verð ég að segja!!!! en þetta yrði fínt lokaverkefni fyrir mig því ég veit það nú þegar að þetta er eitthvað sem ég er góð í. 

visa straujið er líka í hámarki. visareikningurinn verður sennilega svona 150þúsund krónur um næstu mánaðamót og þau sömu mánaðamót vill það svo einkennilega til að ég á ekki 150þúsund krónur til að borga þennan reikningWoundering  150þúsund anyone?? no? anyone??   er nebbla að fara að borga ferðina til Bangkok og Bali. var ég ekki búin að minnast á þá ferð?? Wink108 dagarWink 

við eygló fórum í verklegt í lyfjaval í morgun. við vorum reknar heim. við áttum nefnilega að vera búnar að útbúa 15-20spurninga pharmaceutical care spurningalista fyrir hjartasjúklinga. kennarinn var ekkert að minnast á það við okkur áður en við fórum þangað! nei nei enda algjör óþarfi!!

later Dísa Diggs 


Fæddur er Flóki Narby Kjartansson:):):)

já hún Sibba stóra systir mín átti frumburð sinn klukkan 10:27 í morgun. Þetta að sjálfsögðu fjallmyndarlegur og með eindæmum pollrólegur drengur. Hann er nú bara nettur þessi litli karl, eða 51cm og 13 merkur. Hann hefur sem sagt hlotið nafnið Flóki og Narby er sænska ættarnafnið hans;) Litla fjölskyldan er bara glimrandi hress og hamingjusöm;)

Flóki litli 

Hér eru fleiri myndir;)

Knús frá Eydísi móðu;)


So far...

...er árið 2007 búið að vera bara nokkuð ágætt. það hefur verið nóg að gera, sem er kannski bara fínt því þá líður tíminn hraðar og Bali nálgast óðum.

-var ég ekki annars búin að segja ykkur að ég er að fara til BANGKOK & BALI !!!!

-hmm ég er sennilega ekki búin að minnast á það í hvert einasta skipti sem ég hitti ykkur, svo núna vitiði það........eftir aðeins 120 daga!!!! gott að það er ekki hlaupár því þá væru 121 dagur! hjúkket

-brjálað að gera skólanum. erum búin að vera í verklegu og halda fyrirlestra eins og crazy people!!

-það kom ljósmyndari og tók mynd af bekknum okkar í tíma. það á nebbla að gefa út nýjan kynningarbækling fyrir deildina og þótti að sjálfsögðu við hæfi að hafa hann stútfullan af myndum af fallegasta fólkinu í deildinni.

-hef komist að því að LÍN er alveg jafn veruleikafyrrt stofnun og hún var á síðasta ári. ég fæ heilar 21.000 krónur til þess að kaupa mér bækur. ég er í 5 kúrsum og bara búin að kaupa mér bækur fyrir 1 kúrs og þær kostuðu 20.161 krónu!!! hva á ég þá ekkert að kaupa mér bækur fyrir hina kúrsana???? greinilega ekki gert ráð fyrir að ég þurfi þess. YES! loksins önn þar sem ég þarf ekkert að lesa!!

-sibba stóra systir er ekki ennþá orðin mamma en hún átti samt að verða það 11.janúar

-við heiður eigum 34.627 krónur inná "förumsamanístelpuferðsumarið2008" bankareikningnum okkar ;)

knús Dísa Diggs

c_documents_and_settings_sigurbjorg_my_documents_my_pictures_eeg_dsc00647.jpg

 

 


Vísindateymið EEG...

...óskar vinum og ættingjum nær og fjær, farsældar á komandi ári, með von um gott rubefacient dóp og gott sex á því frábæra ári 2007 Grin

Vísindateymið EEG


Nonnabiti er opinn til 2 á virkum dögum!!

bara svona svo þið vitið það næst þegar þið farið á djammið á miðvikudegi, þá er séns á að grípa sér nonnabita til 2!!! mikið afskaplega vorum við eygló ánægðar að komast að því!!!

það var nebbla jólaglögg hjá lyfjafræðinni og þótti mér nú afskaplega gaman þar á bæ;) hins vegar skil ég ekki hvernig mér er að takast að vera svona bara la la drukkin þegar ég var niðrí bæ en svo núna þegar ég er komin heim þá er ég bara orðin virkilega afskaplega mikið drukkin! allavega það drukkin að ég get ekki lagst uppí rúm því það hringsnýst allt gjörsamlega!! eitthvað skrýtinn dreifistuðull á þessum bjórnum á pravda!

það er búið að færa nonnabita! í húsið við hliðina eða húsið við hliðina á því sem var við hliðina á húsinu sem nonnabiti var. nema ég tók nú ekki mikið eftir því og sagði við afgreiðslukonuna að það væri engin smá breyting þarna inni-bara eins og nýtt!! hún horfði á mig með hneykslunaraugum (þið vitið, gellan sem er sjúklega mjó og það er alltaf eins og augun séu að detta út) og sagði: " það er nú af því að þetta er bara allt annað hús!!!! tókstu virkilega ekki eftir því að þú varst að labba inní allt annað hús?"

uhhh nei það er ekki eins og ég komi nokkurn tímann edrú inná nonnabita!!!

svo voru stólar þar inni svo það er hægt að fara í slag með stólana á virkum dögum. það er ekki hægt um helgar! nonni leyfir það ekki! veitir ekki einu sinni undantekningu fyrir saklausar fyllibyttur sem eru búnar að dansa af sér lappirnar.

vá ég er ennþá of full til að geta farið að sofa svo ég verð að blogga meira.....

hvað get ég sagt.....

hurru mér gekk nú bara agætlega í prófunum....hugsa að það verði kannski engin sumarpróf ....ætla nú samt að fara varlega í yfirlýsingarnar......

....núna veit ég að næstum allar sykrur eru hægðalosandi og terpenar eru rubefacient.  og það þarf ekki að hringja í hjartabílinn ef blóðþrýstingur er 140/90.

díses kræst hvað er eiginlega langt síðan ég fór á fyllerí... ég er alveg steikt eftir 4 bjóra og hálft rauðvínsglas.....hmm fór síðast á djamm 10.nóv. 40 dagar síðan. hey það er eins og svona fasta hjá trúuðum mönnum!!!!!! fæ maður þá ekki verðlaun????? hmm hvað langar mig í í verðlaun?? annars á maður aldrei að óska sér einhvers sérstaks því það er yfirleitt ekki eitthvað sem maður vill þegar mann er orðin eldri og vitrari, hvenær sem það nú verður!  þegar ég var lítil langaði mig að vera helga möller því hún var svo ótrúlega flott í gleðibankanum og í jólalaginu þarna "hann verður hjá mér um jólin....". og mig langaði líka að vera stelpan í stundinni okkar því húnvar með sítt ljóst hár. mig langaði líka alltaf í lítið systkini því það var bara of mikil ábyrgð að vera örverpið og standa undir eilífum dúllukröfum alltaf. það kemur nú alveg að því að dúllan eldist af manni og þá hefði nú verið gott að hafa einhvern til að taka við.  mig langaði líka sjúklega mikið að vera kærastan hans brandons í berverly hills 90210 og svo þegar ég varð aðeins meira kúl þá var ég allt í einu orðin kærastan hans dylans. sooo kúl!! einu sinni langaði mig að eignast fullt að börnum og mála húsið mitt í ógeðslegum pastellitum. langaði líka einu sinni að vera geðveikt kúl hiphoppari... hversu fyndið væri það...væri sennilega alltaf með glóðuraugu útaf stórum og taumlausum brjóstum;) akkuru heitir þetta glóðurauga? af því að það er eins og það sé glóð í auganu og næstum kviknað í því??? fékk næstum glóðurauga í vatnsleikjagarði á spáni. en það varð ekki að að neinu og ég var mjög svekkt yfir því!!! svo kúl að geta sagt sögur af glóðurauganu sínu!!  voðalega finnst mér allt eitthvað kúl núna!

vá hvað ég er fegin að engar af mínum heitustu óskum hafa verið uppfylltar!!!

en mér er fúlasta alvara með verðlaunin fyrir 40 daga föstuna!!! og mér finnst að verðlaunin ættu að vera Jude Law!!! það er klárlega ósk sem verður aldrei nokkurn tímann úrelt!!!

hurru ég er ekki frá því að það sé allt hætt að hringsnúast í kringum mig og ég geti bara farið að sofa ;)

skál Dísa DiggsKissing

 


Sáuð þið Kompás þáttinn í gær?

Það var verið að gera tilraun til þess að fletta ofan af gaurnum úr Byrginu fyrir að neyða unga skjólstæðinga sína til þess að stunda alls konar drottnunarkynlífsathafnir og ég veit ekki hvað og hvað. Nema ég varð bara fyrir miklum vonbrigðum hvernig þeir gengu frá þessu máli. Þeir eiginlega flettu ekki ofan af neinu. Þeir sannfærðu mig allavega ekki og samt var ég eiginlega sannfærð um að þetta væri satt áður en ég horfði á þáttinn. Fékk alltaf nett klígjur þegar ég var að afgreiða þennan mann og vini hans, þegar ég var að vinna í sjoppunni í Sandgerði, þegar Byrgið var á Miðnesheiði. Mér fannst þessi þáttur bara vera skilgreiningar á afbrigðilegu kynlífi og svo fór meirihlutinn af þættinum í að ásaka hann um hina og þessa hluti og sýna honum eitthvað bréf sem einhver hafði sent fréttamönnum. Svo voru tekin viðtöl við 2 fíkla (nafnlaust) en samt höfðu þeir 20 einstaklinga sem allir bera sömu söguna. ok það hlýtur nú að vera að þeir séu með sannanir undir höndum því annars færu þeir ekki að gera svona þátt. En af hverju ná þeir þá ekki að sanna neitt með þessum þætti? bréf og viðtöl við 2 fíkla var það eina sem við sáum og það vita það nú allir að fíklar ljúga meira en nokkurt annað fólk, eins og sannaðist nú bara í seinni hluta þáttarins þegar það var sýnt frá brúðkaupi frægustu fíkla landsins. VÁ hvað ég hef aldrei horft á eitthvað sem er jafn sorglegt og það var skemmtlegt! Það þurfti að draga þau á lappir á brúðkaupsdaginn og brúðurinn var næstum sofnuð í miðri athöfn. Greyin!!! en.....sjúklega fyndið!!

En allavega með þennan gaur í Byrginu. Mér fannst maðurinn nú full rólegur miðað við þær ásakanir sem fréttamenn voru með, en það er nú kannski ekki að marka það. Maður veit auðvitað ekkert hvað þessi maður hefur upplifað og kannski er hann bara búin að upplifa svo margt að það þarf meira en þetta til þess að stuða hann. Eða kannski var hann að gæta þess að missa ekki eitthvað óheppilegt út úr sér? Mér finnst það nú yfirleitt vera sekur maður sem gerir svoleiðis!!

En ég hef nú trú á því að þáttargerðarmenn hafi góðar sannanir fyrir þessu, úr því þeir eru að gera þennan þátt. En ef þeir hafa þessar sannanir.....og hann gerði þessa hluti með því að halda því fram að vera sendiboði guðs og nota til þess hundruðir milljóna frá ríkinu.....af hverju var maðurinn ekki GRILLAÐUR í þættinum???? af hverju sönnuðu þeir ekki neitt fyrir áhorfendum? ef þeir ætla að gera svona þátt.........gera hann þá almennilega!!!!! Því það var greinilega ásetningur þáttagerðarmanna að sýna fram á sekt hans en þeim tókst ekki einu sinni að sannfæra manneskju eins og mig, sem var áður nokkuð sannfærð, hversu fordómafullt sem það nú er. Mér fannst þetta bara klaufalegur þáttur!!!

hmmm ágætt að tala og hugsa um eitthvað annað en próf;)  seinasta prófið er á miðvikudaginn og þá er ég komin í JÓLAFRÍ;);););)

jæja ég ætla að fara að læra um sérhæfð lyfjaform

Dísa Diggs


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband