MÚS 2008 og brúðkaup GuguLindar;)
Sunnudagur, 13. júlí 2008
good times!!!!!
MÚS í ár var bara helvíti skemmtileg þrátt fyrir votviðri og ókristilegar uppvakningar.
Vöknuðum á laugardagsmorgninum þegar það var allt var á floti inní tjaldinu, sem var auðvitað alveg einstaklega ljúf og góð tilfinning. Ég, Kónga og Bebba fórum inní Stykkishólm um 8 leytið til þess að ég gæti fengið far til baka með vinkonu þeirra. Sjaldan hafa sést ferskari manneskjur í bakaríinu þar í bæ!!
Var þá haldið til brúðkaups á Selfossi hjá Guðrúnu Lind og Axel. Ekkert smá fallegt og frábært brúðkaup, þau kunna þetta sko! Verða endilega að gera þetta aftur!
Veislan var haldin í sveitinni hennar Guðrúnar í gamla hænsnakofanum sem búið var að að breyta í glæsilegan sal. Eftir dagskránna tók svo við sveitt dansfestival þar sem Gullfoss og Geysir þeyttu skífurnar og meeeen hvað ég dansaði mikið!!! Held svei mér þá að ég hafi dansað stanslaust í 2 og hálfan tíma! Maður vildi ekki einu sinni taka sér klósettpásu því þeir spiluðu hvern gullstemmarann á fætur öðrum. Djöfull eru þeir skemmtilegir!!
Svo er ég búin að vera sofandi í allan dag alveg búin á því eftir helgina
Hérna eru svo nokkrar myndir úr brúðkaupinu
Lybburnar sætu: Erla, ég, Eygló, Katla Guðrún Stefáns, Sigrún Sif og svo auðvitað GuguLind;).
Erla varstu að koma frá Spáni eða...?
Vísindateymið EEG;)
Með nördagleraugun;)
Brúðar"valsinn" skemmtilegi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Lyfjafræðingur nr.544 ;)
Fimmtudagur, 26. júní 2008
jamm maður er eitthvað latur við bloggið svona um sumartímann;)
margt búið að gerast að sjálfsögðu síðan ég bloggaði síðast.
Útskrifaðist sem lyfjafræðingur þann 14.júní og að því tilefni var haldin veisla að hætti mömmu og svo slegið upp partíi um kvöldið heima hjá Heiði. Þetta var MJÖG skemmtilegur dagur og kvöld.
Takk kærlega fyrir mig allir saman
Ég og Flóki á útskriftardaginn;)
Svo var Guðrún Lind gæsuð síðasta laugardag. Stúdíó, lap dans, áskorendakeppni og hjálpartækjakynning. Brilliant dagur!!
Er búin að setja myndir af þessum tveimur dögum inn á facebook.
Annars er bara allt gott að frétta! Alltaf að vinna og svona
Hildur mín er að koma frá Danmörkinni á morgun
oooog ég er búin að kaupa mér spænsk-íslenska orðabók
Ást og friður
Dísa Diggs
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
hej hej
Mánudagur, 9. júní 2008
jæja komin tími....
Danmerkur/Svíðþjóðarferðin með hallærisgenginu var yndisleg!!!!!!
Ég held ég hafi aldrei verslað svona mikið á svona stuttum tíma og afgreiðslufólkið í H&M hló að mér þegar ég var að borga.
Svo var þessi vika alveg agalega góð blanda af djammi og hyggeligheitum. Þessar stúlkukindur eru sko án efa ástæðan fyrir því að örlögin sendu mig í M.A.
Jæja nóg af væmni í bili....Hérna eru nokkrar myndir úr ferðinni en ég set fleiri í albúm þegar ég er búin að splæsa mér í meira myndaplássi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Kominn tími á hugvekju held ég bara!
Mánudagur, 19. maí 2008
það er rólegt hjá manni þessa dagana, hangi á netinu á milli þess sem ég geri tilraunir til þess að taka til í þessari líka svakalega stóru íbúð sem ég bý í.....
mín bara búin með lyfjafræðina ótrúlega skrýtið að þessu 5 ára erfiða en jafnframt skemmtilega tímabili sé að ljúka.... bara sjálf útskriftin eftir þann 14 júní
vörnin á ritgerðinni gekk bara mjög vel, var örlítið stressuð fyrst en svo fór það um leið og ég byrjaði að tala á fullu. en vááá hvað það var mikill léttir þegar það var búið!!! OMG hvað ég var eitthvað fegin, ánægð og afslöppuð á þeim tímapunkti
og svo er það bara Danmörk á miðvikudaginn æ það verður ótrúlega gaman að eyða smá tíma með hallærisgenginu úr MA
. Við Heiður förum til Hildar í Árósum á miðvikudag og svo kemur Ásta þangað á fimmtudeginum. Á laugardeginum förum við svo heim til Ástu í Svíþjóð og eyðum smá tíma þar áður við höldum svo aftur til Köben. Þetta verður án efa alveg rosalega skemmtileg ferð og hún er búin að halda í mér lífinu í gegnum þetta blessaða mastersverkefni!
Hér eru svo nokkrar myndir af bekknum síðan á fimmtudaginn, sem var GÓÐUR DAGUR
og ég skora á ykkur að KOMMENTA ef þið eruð á annað borð að lesa bloggið mitt og hana nú!!!!!!!
Hilsen, Dísa Diggs
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
hæ!
Þriðjudagur, 13. maí 2008
2 dagar í vörnina......shit!!..............en það verður sweet þegar þetta er allt saman búið
síðasta helgi var skemmtileg, enda var stofnfundur H.F.Í.
við Eygló höfum ákveðið að beita brögðum, sem nánar má lesa um hér.
Þetta getur maður gert eftir 5 ár í lyfjafræði
jæja best að halda áfram að æfa þennan fyrirlestur svo ég standi ekki í púlti eins og álka
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
ég á að vera að skrifa ritgerð...
Mánudagur, 21. apríl 2008
...þess vegna eyði ég skuggalega miklum tíma á youtube
ohh þetta er eitthvað klikkað......hérna er þetta ;)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
grrrrrrrrrrrrr
Föstudagur, 18. apríl 2008
mmmm ég fór í sturtu í morgun með myndarlega nágrannanum!!!!!
.......að vísu var eitt stykki aumingjalega steyptur veggur á milli okkar...........
.......en ég hef hins vegar ákveðið að láta slíka veraldlega hluti ekki hamla mér í hamingjuleitinni
Ást og friður
Dísa Diggs
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
ég sakna þeirra svo mikið!!!
Miðvikudagur, 16. apríl 2008
já nú er mín sko orðin youtube óð eins og Eygló
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Shit hvað þetta er fyndið!!!!!!!!
Sunnudagur, 13. apríl 2008
ok það getur vel verið að það séu allir löngu búnir að sjá þetta og ég sé bara svona lengi að fatta en allavega........þetta eru fáránlega fyndin myndbönd!!! mæli með að þið horfið á þau í réttri röð;)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)